„Það er verið að grafa í Kjötborg“
Eigendahópurinn sem stendur að baki Kaffi Kjötborg. Fremri röð: Einar Þór Sverrisson, Ragnar Jónasson, Hálfdán Steinþórsson, Erla Björnsdóttir, Sesselja Dagbjört Gunnarsdóttir, sem afhenti lyklana, og María Margrét Jóhannsdóttir. Aftari röð: Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, Anna Jóna Aðalsteinsdóttir, Vilhjálmur Jens Árnason, Birna Guðmundsdóttir, Kristún Auður Viðarsdóttir, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Halla Helgadóttir. Ljósmynd/Aðsend
Undirbúningur fyrir opnun kaffihúss í húsnæði verslunarinnar Kjötborgar við Ásvallagötu tók óvænta stefnu á dögunum. Endurbætur á húsnæðinu reyndust mun flóknari en búist var við.
„Það kom í ljós að verkefnin undir yfirborðinu voru heldur fleiri en við höfðum gert ráð fyrir. Nú er unnið að lögnum og öðrum nauðsynlegum undirbúningi áður en skemmtilegri verkþættir taka við og staðurinn fer að taka á sig mynd,“ segir í færslu á Facebook-síðu kaffihússins.
„Við hefðum auðvitað helst viljað vera farin að hella upp á kaffi og taka á móti góðum gestum, en fyrst þarf að tryggja að grunnurinn sé í lagi.
Við höldum ótrauð áfram og hlökkum til að taka á móti ykkur sem fyrst,“ segir þar.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/66/22/1662224.jpg)