Enn engin ákæra fyrir Rönninge-drápið
Vilma Andersson er grunaður um að hafa myrt My og hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan um jól auk þess að hafa gengist undir geðrannsókn. Ljósmynd/Úr einkasafni
Ákæru á hendur 26 ára gömlum manni, sem grunaður er um að hafa myrt My, 25 ára gamla konu, í Rönninge í Salem í Svíþjóð um jólin, hefur enn verið frestað.
Í þetta sinn er það þó ekki embætti héraðssaksóknara sem boðar enn eina frestunina heldur er það verjandi grunaða sem fer fram á hana og kveðst þurfa tíma til að fara yfir rannsóknargögnin með skjólstæðingi sínum.
Fyrir vikið er áætlað að ákæran líti dagsins ljós 1. desember sem er viku seinna en saksóknari hefur farið fram á, en síðast þegar mbl.is flutti fregnir af málinu, í ágúst, var staðan sú, eftir fjölda frestana af hálfu héraðssaksóknara, að héraðsdómur greip inn í og krafðist þess að ákæran liti dagsins ljós í seinasta lagi klukkan 11.00 15. september.
Í gæsluvarðhaldi langt umfram tímamörk
Á þeim tíma var beðið eftir niðurstöðum úr greiningu innsendra sýna frá sænsku réttarrannsóknarstofunni NFC auk þess sem ný tæknileg sönnunargögn höfðu þá borist þegar rannsóknin átti að vera á lokastigi.
Grunaði, áður Robin Andersson, nú Vilma Andersson, hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn um jólin þrátt fyrir að lögboðin tímamörk gæsluvarðhalds samkvæmt sænskum lögum séu löngu liðin. Svo gæsluvarðhald verði framlengt svo mjög, sem raunin er nú, þarf lögregla að bera við mjög ríkum ástæðum.
Andersson hefur játað sekt sína varðandi vanvirðandi meðferð líks og stórfellt brot er snýr að handhöfn barnaníðsefnis, en neitar staðfastlega að hafa myrt My eftir að hún hvarf á leið til heimilis síns á jólanótt í fyrra.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗