Hvetur leiðtogana til að þrýsta á Pútín
Erlent | AFP | 18.11.2026 | 23:05
Utanríkisráðherra Úkraínu hvatti í dag Xi Jinping, leiðtoga Kína, og Donald Trump Bandaríkjaforseta til að „þrýsta“ á Vladímír Pútín Rússlandsforseta um að binda enda á innrás sína í Úkraínu.
„Bæði Bandaríkin og Kína hafa afgerandi áhrif á Rússland, sérstaklega hvað varðar það að binda enda á árásirnar og stríðið,“ sagði Andríj Sybíha við fréttamenn í Kænugarði og vísaði til hins sögulega þríhliða leiðtogafundar í Shenzhen í Kína á morgun.
„Við vonumst til og gerum ráð fyrir að þetta verði tónninn í þessum viðræðum: þrýstingur á Rússland um að binda enda á stríðið.“
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗