„Formsatriði að klára leikinn“
Gunnar Magnússon þjálfari Hauka var ánægður með lið sitt sem vann sinn 11. sigur í jafnmörgum umferðum í úrvalsdeild karla í handbolta í kvöld þegar liðið vann Aftureldingu 37: 30 eftir að hafa náð mest 10 marka forskoti.
„Við kláruðum þetta í rauninni í fyrri hálfleik og síðan var þetta formsatriði að klára leikinn,“ sagði Gunnar en viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗