Pútín pirraður: Skýrt og gróft brot

Vladímir Pútín er ekki sáttur.

Vladímir Pútín er ekki sáttur. AFP/Alexander Kazakov

Vladímír Pútín, forseti Rússlands, hefur fordæmt þau ríki sem neita að mæta Rússlandi í alþjóðlegu íshokkíi og kallað afstöðu þeirra „skýrt og gróft brot á dómsúrskurðum“.

„Takmarkanirnar á rússneskar íþróttir eru frekar pólitískar en lagalegar,“ sagði Pútín fyrr í mánuðinum samkvæmt AFP.

Svíþjóð, Finnland, Noregur, Danmörk, Tékkland og Lettland hafa lýst því yfir að þau muni ekki spila við Rússland á meðan stríð þess gegn Úkraínu heldur áfram.

Alþjóðaíþróttadómstóllinn (CAS) felldi 30. október úr gildi ákvörðun Alþjóðaíshokkísambandsins um að útiloka rússnesk landslið frá alþjóðlegum mótum.

Dómstóllinn sagði að úrskurðurinn varðaði röksemdir sambandsins um öryggismál og byggðist eingöngu á þeim gögnum sem lögð voru fram. Enn er óljóst hvernig endurkoma Rússlands mun fara fram.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab