Afganskir menn dæmdir fyrir að nauðga ungri stúlku
Baryalai Rahimi og Mirebadurahman Sadat voru sakfelldir fyrir nauðgun. Ljósmynd/Breska samgöngulögreglan.
Tveir afganskir innflytjendur hafa verið sakfelldir fyrir að nauðga og ráðast á 14 ára stúlku um borð í lest frá Kent til Lundúna.
Breska samgöngulögreglan greinir frá.
Annar þeirra, hinn 25 ára gamli Baryalai Rahimi, var sakfelldur fyrir nauðgun, kynferðisbrot og fyrir að hafa í þrígang fengið barn til kynferðislegra athafna.
Hinn maðurinn, hinn 29 ára gamli Mirebadurahman Sadat, var sakfelldur fyrir líkamsárás og að fá barn til kynferðislegra athafna. Refsing mannanna verður ákvörðuð þann 18. desember.
Mennirnir vissu að hún væri 14 ára
Mennirnir tveir nálguðust stúlkuna á lestarstöð nálægt Kantaraborg þann 5. febrúar síðastliðinn og fóru þau öll þrjú um borð í lestina þar sem Rahimi nauðgaði stúlkunni áður en hann yfirgaf vettvanginn á meðan Sadat braut enn frekar á henni.
Stúlkan sagði mönnunum ítrekað að hætta og benti þeim á að hún væri 14 ára gömul.
Eftir að lestin nam staðar í Lundúnum eltu þeir stúlkuna í aðra lest sem var á leið til Peterborough. Mennirnir fóru úr lestinni annars staðar Lundúnum en stúlkan hélt leið sinni áfram til Peterborough þar sem hún tilkynnti lögreglumönnum um nauðgunina.
Með hjálp lýsinga stúlkunnar og myndefnis úr öryggismyndavélum tókst lögreglu að hafa uppi á mönnunum og voru þeir í kjölfarið handteknir þann 10. febrúar.
内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗