Þrennt fannst látið í íbúð

Give er skammt norðan Billund á Jótlandi, þrennt fannst látið þar í íbúð í morgun og er enginn í haldi lögreglu þegar þetta er skrifað. Skjáskot/Google Maps

Lögreglan á Suðaustur-Jótlandi í Danmörku rannsakar nú þrjú dauðsföll á heimili nærri Give þar sem 62 ára gamall karlmaður, 48 ára kona og tíu ára gömul stúlka fundust látin í morgun.

Hefur lögregla nú greint frá líkfundinum og segir tilkynningu hafa borist klukkan 10.01 í morgun að dönskum tíma um þrjá lífvana einstaklinga á vettvangi.

Er leið á daginn handtók lögregla fjóra einstaklinga, sem hún taldi viðriðna málið, en þeim var öllum sleppt úr haldi nú undir kvöld og hafa frekari handtökur ekki átt sér stað þegar þessi frétt er skrifuð.

Aðstæður kölluðu á sakamálarannsókn

„Náin tengsl“ eru milli hinna látnu, sem oftar en ekki er orðalag lögreglu yfir fjölskyldubönd þegar sakamál eru annars vegar, og segir Brian Skovrup Christensen aðstoðaryfirlögregluþjónn í fréttatilkynningu lögreglunnar að ekki sé enn ljóst hvað varð fólkinu að bana, „en aðstæður á vettvangi urðu til þess að við hófum umfangsmikla rannsókn sem á að leiða í ljós hvað gerðist“, er enn fremur haft eftir Christensen í tilkynningunni.

Lögregla lítur á málið sem einangrað atvik enn sem komið er.

Vettvangsrannsókn er nú í höndum tæknideildar lögreglu sem leitar sönnunargagna á heimilinu, en lögregla vill enn sem komið er ekki tjá sig um andlátsstund hinna látnu.

DR

DR-II (fyrsta frétt DR af líkfundinum)

DR-III (sjónvarpsfréttakona DR á vettvangi)

Vejle Amts Folkeblad

Jyllands-Posten

内容来自 Mbl.is - Erlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab