Stakk starfsmann í hálsinn með blýanti
Árásin átti sér stað að kvöldi 27. júlí 2024. Maðurinn sló starfsmanninn með hnefanum í bakið og stakk hann síðan í hálsinn með blýanti. Ljósmynd/Colourbox
Héraðsdómur Reykjaness sakfelldi í dag rúmlega tvítugan mann fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás, eignaspjöll og tilraun til húsbrots.
Brotin beindust að sama manni, starfsmanni sem kom að lögbundinni þjónustu við ákærða.
Dómurinn frestaði ákvörðun um refsingu. Ákvörðunin fellur niður að fimm árum liðnum frá birtingu dómsins ef maðurinn heldur almennt skilorð.
Honum var jafnframt gert að greiða brotaþola 800 þúsund krónur í miskabætur og 15.256 krónur í bætur vegna eignatjóns, hvort tveggja með vöxtum.
Braut rúðu í útidyrum íbúðarinnar
Árásin átti sér stað að kvöldi 27. júlí 2024. Maðurinn sló starfsmanninn með hnefanum í bakið og stakk hann síðan í hálsinn með blýanti. Starfsmaðurinn hlaut stungusár vinstra megin á hálsi, mar á mjóbaki og tognun í brjósthrygg.
Rúmum sjö mánuðum síðar, 3. mars 2025, braut maðurinn rúðu í útidyrahurð íbúðar starfsmannsins í því skyni að ryðjast inn án heimildar.
Maðurinn játaði skýlaust sök í báðum ákæruliðum fyrir dómi 11. nóvember.
Geðlæknir taldi refsingu árangurslausa
Í matsgerð geðlæknis, sem aflað var eftir útgáfu ákæru, kom fram að vafi léki á því hvort maðurinn hefði verið sakhæfur þegar hann framdi brotin. Geðlæknirinn taldi að refsing gæti ekki borið árangur.
Við ákvörðun um viðurlög leit dómurinn til matsgerðarinnar, skýlausrar játningar mannsins og þess að hann hafði ekki áður orðið uppvís að refsiverðri háttsemi. Dómurinn tók jafnframt fram að brotin hefðu verið alvarleg og beinst að starfsmanninum að ósekju.
Að þessu virtu taldi dómurinn rétt að fresta ákvörðun um refsingu í fimm ár. Við mat á því hvort setja ætti manninum frekari skilyrði leit rétturinn til búsetu hans og þess að hann hefur verið sviptur lögræði tímabundið til ársins 2030. Dómurinn lét almennt skilorð nægja.
Krafðist tveggja milljóna í miskabætur
Brotaþoli krafðist tveggja milljóna króna í miskabætur. Dómurinn taldi 800 þúsund krónur hæfilegar með hliðsjón af atvikum og gögnum málsins. Krafa brotaþola um 15.256 krónur í bætur vegna eignatjóns var tekin að fullu til greina.
Manninum var einnig gert að greiða 1.240.400 krónur í sakarkostnað. Þar af eru 56.510 krónur vegna áverkavottorðs brotaþola.
Afgangurinn er helmingur þóknunar verjanda mannsins og réttargæslumanns brotaþola. Ríkissjóður greiðir hinn helming þóknananna og kostnað vegna matsgerðar geðlæknisins.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗