Fjórtán ára stúlka stal senunni
Ástralska brimbrettastúlkan Leihani Zoric, 14 ára, varð yngsti meistari í sögu heimsmeistaramótsins eftir að hafa unnið titilinn í kvennaflokki í Punta Rocas í Perú um helgina.
Zoric sigraði Johanne Defay frá Frakklandi í úrslitum og stóð uppi sem sigurvegari í hópi 105 keppenda, þar á meðal Stephanie Gilmore, sem hefur átta sinnum orðið heimsmeistari.
Hún varð einnig fyrsti Ástralinn af frumbyggjaættum til að vinna heimsmeistaratitil á brimbretti. Hún vann heimsmeistaratitil 18 ára og yngri í september síðastliðnum.
„Ég er svo ótrúlega glöð og stolt,“ skrifaði Zoric á Instagram. Sigur hennar hjálpaði Ástralíu að tryggja sér sigur í liðakeppninni, en landi hennar, Ethan Ewing, vann einstaklingstitilinn í karlaflokki.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗