„Gaman að vinna svona topplið“
Freyr Aronsson var markahæstur í liði Hauka í kvöld með 10 mörk þegar liðið vann Aftureldingu í 11. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í kvöld. Haukar eru fyrsta liðið til að vinna Aftureldingu í Mosfellsbæ á tímabilinu.
„Það er gaman að vinna svona topplið eins og Aftureldingu,“ sagði Freyr sem skrifaði sigurinn á góða vörn og frábæra byrjun Hauka sóknarlega í leiknum. Nánar um málið má sjá í spilaranum.
Freyr Aronsson sækir að marki Aftureldingar og skorar eitt af 10 mörkum sínum í kvöld. mbl.is/Eggert Jóhannesson
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗