„Þú gerir kannski eitthvað með þetta“

Gylfi Pálsson skyldi eftir sig mikið safn veiðifrásagna. Börn Gylfa og nánustu ættingjar voru öll sammála um að koma þeim í bókarform. Út með færið! Veitt með Gylfa Pálssyni er nú komin út. Ljósmynd/Níels Hermannsson

„Þú gerir kannski eitthvað með þetta,“ sagði Gylfi Pálsson við Trausta son sinn þegar þeir feðgar voru að fara yfir efni í tölvu Gylfa, skömmu áður en hann lést. Gylfi var þá tæplega 92ja ára og dvaldi síðustu tvo mánuði ævi sinnar á hjúkrunarheimilinu Eir.

„Ég varð eiginlega forviða þegar ég var að skoða efnið með honum. Þarna voru yfir tvö hundruð veiðisögur og frásagnir og um fjögur hundruð ljóð, eða hækur,“ segir Trausti í samtali við Sporðaköst, þegar hann er spurður um aðdraganda bókarinnar Út með færið! Þar er að finna fjölmargar frásagnir Gylfa af veiðislóð og fjölbreyttar sögur. Trausti segir að á þessum tímapunkti hafi þeir rætt um endalokin sem öllum eru óumflýjanleg. „Já. Ég er sáttur. Búinn að veiða tonn af laxi,“ svaraði hann syni sínum þegar horft var yfir farinn veg.

Trausti spurði hann þá hvort hann hefði viljað hafa eitthvað öðruvísi þegar hann horfði til baka. Svarið var ákveðið. „Já,“ svaraði Gylfi og Trausti hækkar róminn ósjálfrátt og allt að því hermir eftir föður sínum. „Ég hefði viljað fæðast í Skagafirði. Þar eru óendanlegar veiðilendur.“ Gylfi fæddist á Akureyri og þetta var eina eftirsjáin, ef orða má það sem svo.

Gylfi með fisk á færi. Eiginkona hans, Steinunn Katrín Theodórsdóttir, fylgist með. Ljósmynd/Drápa

Við dauðsfall í fjölskyldunni segir Trausti að hann hafi spurt pabba sinn þegar þeir voru í erfidrykkju eftir jarðsetningu, hvernig hann myndi vilja hafa þetta. „Þið brennið mig og dreifið öskunni í Kofastreng. Þar eru þeir stórir.“ Ekki reyndist heimilt að dreifa ösku í Bíldsfelli í Soginu þannig að úr varð að henni var dreift við ósa Ölfusár, en þar um fara allir laxar sem ganga í Sogið og aðrar ár þessa mikla vatnakerfis.

Trausti segir að hann hafi leitað til kunnugra og þeir bent sér á Ásmund Helgason í bókaútgáfunni Drápu. „Ási tók okkur mjög vel og málið fór í ákveðið og gott ferli. Þóra systir er menntaður bókasafnsfræðingur og tók að sér að stjórna þessu og gerði það listavel og skar grimmt niður eins og þurfti að gera,“ segir hann glaðbeittur.

Ljóðin hans Gylfa eru hækur. Það er japanskur bragarháttur og eru hvort ljóð þrjár línur. Fyrsta lína inniheldur 5 atkvæði, önnur lína 7 atkvæði og sú þriðja og síðasta 5 atkvæði.

Hér er ein úr bókinni:

Veiddi vel í dag

silungsveisla á morgun

restin fer í reyk.

Bókin hefur að geyma yfir 70 frásagnir af laxveiði, silungsveiði og fjöruveiði. „Þú gerir kannski eitthvað með þetta,“ sagði Gylfi við Trausta son sinn þegar þeir skoðuðu efnið saman. Ljósmynd/Drápa

Í fréttatilkynningu frá Drápu um bókina segir: „Hér skrifar Gylfi um silungsveiði, laxveiði, vatnaveiði, veiði í ám og veiði úr fjöru. Hann skoðar einnig umhverfi veiðimannsins, bæði náttúruna og umgjörðina. Sögurnar eru bæði fróðlegar, spennandi og skemmtilegar.

Bókin er 230 blaðsíður og inniheldur meira en 70 greinar, pistla og viðtöl. Þá eru einnig í bókinni nokkrar mataruppskriftir fyrir veiðifólk, einnig uppskrift að flugunni Gylfaginningu og nokkrar hækur sem Gylfi orti.“

Út með færið! Á veiðum með Gylfa Pálssyni er komin í bókaverslanir. Rödd Gylfa er hluti af uppeldi nokkurra kynslóða og var hann gjarnan kallaður hinn íslenski Attenborough því hann las inn á allar myndir hans sem sýndar voru í sjónvarpi, hér á árum áður. Gylfi ástundaði veiðiskrif áratugum saman, sem ritstjóri Veiðimannsins og skrifaði pistla um veiði í Morgunblaðið, svo fátt eitt sé nefnt.

Seinustu hundraðkallar sumarsins

Lengd á laxi Veiðisvæði Veiðimaður Dagsetning Dags.
108 cm Stóra Laxá Jón Kristinsson 27. september 27.9.
100 cm Laxá í Dölum Reynir Sigmundsson 26. september 26.9.
102 cm Fossá Theodór Ingibergsson 18. september 18.9.
102 cm Selá í Vopnafirði Huginn Freyr Þorsteinsson 4. september 4.9.
103 cm Laxá í Aðaldal Auðunn Sigurðsson 3. september 3.9.
107 cm Laxá í Aðaldal Nils Folmer Jorgensen 29. ágúst 29.8.
102 cm Hofsá Bergþór Jónsson 25. ágúst 25.8.

Skoða meira

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab