Lovísa mögnuð í Portúgal

Lovísa Thompson átti stórleik.

Lovísa Thompson átti stórleik. mbl.is/Karítas

Lovísa Thompson var markahæst á vellinum með tíu mörk þegar Benfica vann Feirense, 41:19, á útivelli í portúgölsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Íslenska landsliðskonan fór fyrir sóknarleik Benfica sem vann afar öruggan sigur, en 22 mörkum munaði á liðunum þegar upp var staðið.

Benfica er á toppi deildarinnar og hefur unnið alla tíu leiki sína á tímabilinu. Liðið er komið með 30 stig en þrjú stig eru gefin fyrir sigur í deildinni.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab