„Þetta gerði mig fullorðna á einum degi“
Þórey Mjallhvít Heiðardóttir Ómarsdóttir, sem stendur að baki teiknimyndaþáttunum Ormhildarsögu, var aðeins tólf ára þegar hún missti móður sína, barnabókahöfundinn Heiði Baldursdóttur, úr krabbameini. Missirinn hafði mikil áhrif á hana og segist hún hafa upplifað að hún þyrfti skyndilega að taka ábyrgð á eigin lífi.
„Þetta gerði mig fullorðna á einum degi,“ segir Þórey í Dagmálum.
Þegar hún varð átján ára ákvað hún að bæta Heiðardóttur við nafn sitt, eftir móður sinni.
Þórey Mjallhvít ásamt móður sinni, Heiði Baldursdóttur, sem lést úr krabbameini árið 1993, aðeins þremur dögum fyrir 35 ára afmælið. Þórey var þá tólf ára og hefur síðan fetað í fótspor móður sinnar í sagnagerð. Samsett mynd
Ólst upp við þjóðsögur og ævintýri
Heiður skrifaði fjölda barnabóka, meðal annars ævintýrasöguna *Álagadalinn*, sem kom út árið 1989 og færði henni Íslensku barnabókaverðlaunin sama ár. Bókin Sögurnar um Evu Klöru kom jafnframt út eftir andlát hennar.
Þórey segir móður sína hafa haft mikil áhrif á áhuga sinn á þjóðsögum og ævintýrum. Hún og eldri systir hennar fengu að lesa yfir handrit móður sinnar og koma með athugasemdir. Systurnar voru jafnframt fyrirmyndir að aðalpersónunum tveimur í Álagadalnum.
Þórey segist enn finna fyrir áhrifum móður sinnar í eigin listsköpun og velti því stundum fyrir sér hvort hún sé að feta í fótspor hennar.
Fluttu inn á undan föður sínum
Þórey rifjar upp að fjölskyldan hafi fest kaup á húsi skömmu áður en móðir hennar lést. Draumurinn var að þau flyttu þangað öll fjögur, en faðir hennar, Ómar Harðarson, var svo bugaður af sorg eftir fráfall eiginkonu sinnar að hann treysti sér ekki til að flytja inn.
Þórey og eldri systir hennar ákváðu þá að taka málin í sínar hendur. Þær tóku köttinn sinn og fluttu í húsið, en faðir þeirra kom síðar.
Ómar er nú kominn á eftirlaun og hefur tekið að sér að vera ritstjóri dóttur sinnar.
Teiknimyndaþættirnir Ormhildarsaga byggja á íslenskum þjóðsögum og hafa vakið athygli bæði hér heima og erlendis enda afar metnaðarfull 26. þátta sería.
Þórey segir að börn sem verða fyrir áföllum geti upplifað sig fullorðin löngu áður en þau eru það í raun og farið að taka ákvarðanir sem þau ættu ekki að þurfa að bera ábyrgð á.
Áhrifa móður hennar gætir enn í listsköpun Þóreyjar, meðal annars í teiknimyndaþáttunum Ormhildarsögu, sem eru afrakstur um áratugslangrar vinnu og alþjóðlegs samstarfs.
Að verkefninu koma meðal annars sjónvarpsstöðvar á Norðurlöndunum og í Þýskalandi, auk þess sem þættirnir hafa verið talsettir á rússnesku. Þættirnir hafa einnig notið vinsælda meðal íslenskra barna og segist Þórey hafa rekist á börn sem bregða sér í hlutverk persóna úr Ormhildarsögu.
Hægt er að horfa á viðtalið við Þóreyju Mjallhvíti í heild sinni hér. Þættina Ormhildarsögu má sjá hér.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

