Neyddust til að lenda á Írlandi

Innlent | mbl | 18.11.2026 | 22:12

Flugvélin frá Neos skilar sér ekki heim til Íslands í kvöld. Lent var á Írlandi vegna veikinda farþega. mbl.is

Vél flugfélagsins Neos, sem var á leið frá Tenerife til Keflavíkur, neyddist til að lenda í bænum Shannon í Írlandi vegna veikinda eins farþega um borð. 

Þetta staðfestir Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, í samtali við mbl.is. 

Vélin átti upprunalega að lenda í Keflavík klukkan fimm mínútur yfir níu í kvöld en nú hefur fluginu verið aflýst.

Neos er ítalskt flugfélag sem á í samstarfi við ferðaskrifstofur hér á landi á borð við Heimsferðir, Úrval útsýn og Plúsferðir. 

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab