Segir Zidane og Mbappé hafa tekist á

Mbappé og Zidane ræða saman.

Mbappé og Zidane ræða saman. AFP/Özan Kose

Franski sjónvarpsmaðurinn Cyril Hanouna heldur því fram að Zinedine Zidane, landsliðsþjálfari Frakka, hafi lent í útistöðum við fyrirliðann Kylian Mbappé fyrir leikinn gegn Ítalíu í Þjóðadeildinni í síðustu viku.

Í þættinum Tout beau, tout neuf á W9 fullyrti Hanouna að Mbappé hefði verið tregur til að spila og að Zidane hefði brugðist við með því að ákveða að hann myndi ekki leika gegn Ítalíu. Mbappé yrði þó áfram hjá landsliðshópnum.

„Hann hagaði sér dálítið eins og díva,“ fullyrti Hanouna og vísaði í ónafngreinda heimildarmenn innan herbúða liðsins.

Zidane gaf opinberlega aðra skýringu og sagði að Mbappé hefði fundið fyrir óþægindum og að ekki yrði tekin áhætta með hann.

Hann hrósaði jafnframt hugarfari framherjans og sagði að hann hefði viljað spila gegn Ítalíu.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab