Svefnherbergið getur haft áhrif á kynlífið

Ef svefnherbergið er hlýlegt og snyrtilegt eru meiri líkur á að eitthvað skemmtilegt gerist innan veggja þess. Ljósmynd/Unsplash

Svefnherbergið á að vera griðastaður þar sem við getum slakað á, hlaðið batteríin og notið samveru með makanum. En vissir þú að innréttingar, lýsing og jafnvel liturinn á rúmfötunum geta haft áhrif á kynlífið?

Bandaríska tímaritið Cosmopolitan gefur upp níu ráð til að skapa meiri nánd og rómantík í svefnherberginu. 

Það er fátt jafn lítið spennandi og að ætla að eiga rómantíska stund með makanum en koma inn í svefnherbergi þar sem óhreinn þvottur og alls konar dót minna á allt sem á eftir að gera.

Umhverfið hefur nefnilega meiri áhrif á kynlöngun okkar en margir gera sér grein fyrir. Ashley Giddens, innanhússhönnuður og stofnandi Ashthetics NYC, segir að svefnherbergið hafi þegar áhrif á það hvernig okkur líður gagnvart kynlífi, hvort sem við áttum okkur á því eða ekki.

Það er ekki bara draslið sem skiptir máli. Lýsing, áferð efna, litir og uppröðun húsgagna geta öll haft áhrif á hversu afslöppuð, örugg og kynþokkafull okkur líður.

Góðu fréttirnar eru þær að það þarf hvorki stórframkvæmdir né mikla peninga til að breyta stemningunni.

Góður svefn er grunnurinn að góðu kynlífi

Það kann að hljóma óspennandi en fyrsta skrefið að betra kynlífi gæti einfaldlega verið betri svefn. Ef svefnherbergið býður ekki upp á góða hvíld eru litlar líkur á að mikil orka sé eftir fyrir annað. Svefnleysi getur auk þess haft áhrif á hormónastarfsemi líkamans og þar með kynlöngun.

Þess vegna er mikilvægt að byrja á góðri dýnu og þægilegu rúmi. Hæð rúmsins getur líka skipt máli. Lág rúmgrind skapar afslappaða og notalega stemningu á meðan hærra rúm getur gefið herberginu fágaðan hótelbrag.

Losaðu þig við draslið

Ein einfaldasta og ódýrasta leiðin til að gera svefnherbergið meira aðlaðandi er að taka til. Þvottahrúgur, tölvur, reikningar og annað sem minnir á daglegar skyldur getur truflað einbeitinguna og gert okkur erfiðara fyrir að slaka á. Svefnherbergið ætti helst að vera staður þar sem hægt er að skilja áhyggjur dagsins eftir fyrir utan dyrnar.

Byrjaðu á náttborðunum, stólnum sem hefur breyst í fatahengi og öllu því sem á ekki heima í svefnherberginu. Fallegar hirslur, skúffuskipulag og geymslur undir rúminu geta gert kraftaverk.

Hafðu það sem þú þarft innan seilingar

Það er fátt sem eyðileggur stemninguna jafnhratt og að þurfa að fara á fætur til að leita að einhverju. Kynlífsfræðingurinn og rithöfundurinn Emily Nagoski bendir á í bók sinni Come Together að litlar breytingar á umhverfinu geti skipt ótrúlega miklu máli.

Hún nefnir til dæmis hversu einfalt það sé að hafa sérstaka skúffu við rúmið fyrir hluti sem geta komið sér vel í náinni samveru, svo sem handklæði, sleipiefni eða kynlífsleikföng. Hugmyndin er einföld: Gerðu umhverfið þannig úr garði að ekkert þurfi að trufla stundina.

Hugsaðu út fyrir hefðbundin svefnherbergishúsgögn

Það þarf ekki endilega að fjárfesta í sérhönnuðum kynlífshúsgögnum til að gera svefnherbergið skemmtilegra. Stundum getur fallegur legubekkur, stórir og stífir púðar eða þægilegur hægindastóll breytt miklu.

Sérstakir stuðningspúðar geta líka gert ákveðnar stellingar þægilegri með því að minnka álag á bak, mjaðmir og hné.

Mikilvægast er að velja húsgögn sem henta ykkar þörfum og skapa rými fyrir bæði þægindi og gleði.

Rétt lýsing getur breytt öllu

Lýsing er líklega eitt áhrifaríkasta atriðið þegar kemur að því að skapa réttu stemninguna í svefnherberginu.

Sterk loftlýsing getur verið óvægin og gert okkur meðvitaðri um eigin líkama. Mjúk og hlý lýsing skapar hins vegar notalegra andrúmsloft og getur hjálpað okkur að slaka á. Ashley Giddens mælir með því að sleppa sterkri loftlýsingu á kvöldin og nota frekar tvo lampa nálægt rúminu.

Best er að velja dimmanlegar perur með hlýjum lit, helst 2700 kelvin eða lægra. Perur í kringum 2200 kelvin gefa frá sér sérstaklega hlýja birtu sem minnir á kertaljós. Fyrir þá sem vilja aðeins djarfari stemningu getur bleik eða rauð stemningslýsing líka verið skemmtileg viðbót.

Veldu liti sem skapa nánd

Litir hafa mikil áhrif á upplifun okkar af rými og svefnherbergið er þar engin undantekning.

Bleikir tónar eru sérstaklega áhugaverðir að mati Giddens. Þeir geta skapað hlýlegt og rómantískt andrúmsloft og fara auk þess fallega með húðlitum.

Rauður er auðvitað klassískur litur ástríðunnar. Hann getur gert rýmið innilegra og skapað sterka stemningu, en þarf að nota af smekkvísi.

Fyrir þá sem vilja fágaðra og dularfyllra yfirbragð geta djúpir litir á borð við plómufjólubláan, vínrauðan og dökkbláan verið einstaklega fallegir.

Áður en þú málar er þó mikilvægt að prófa litina í þeirri lýsingu sem þú notar á kvöldin. Sami litur getur nefnilega litið gjörólíkt út í dagsbirtu og hlýrri lampalýsingu.

Ekki gleyma loftinu

Þegar við hugsum um að mála svefnherbergið beinist athyglin yfirleitt að veggjunum. En hvað með loftið?

Giddens bendir á að loftið sé einmitt sá flötur sem við horfum hvað mest á þegar við liggjum í rúminu.

Það getur því verið skemmtileg hugmynd að mála loftið í öðrum lit en hefðbundnum hvítum.

Hlýr ferskjulitur eða mjúkur bleikur getur skapað fallega birtu og gert herbergið notalegra. Dökkir tónar geta einnig gefið rýminu meiri dýpt.

Hún varar þó sérstaklega við grænum lit í lofti þar sem endurkastið getur gefið húðinni óheppilegan grænleitan blæ.

Leyfðu rúmfötunum að setja tóninn

Ef þú hefur hvorki tíma né áhuga á að mála getur verið nóg að skipta um rúmföt.

Rúmið er yfirleitt stærsta húsgagnið í svefnherberginu og rúmfötin hafa því gríðarleg áhrif á heildarútlitið. Giddens mælir með því að hugsa um litaval á rúmfötum á svipaðan hátt og þegar við veljum förðunarliti sem fara vel við húðina.

Bleikir, ferskjulitaðir, vínrauðir og djúpir plómutónar geta skapað hlýlega og rómantíska stemningu.

Áferðin skiptir ekki síður máli. Mjúk bómull, hör eða silkimjúk efni geta gert rúmið enn meira aðlaðandi.

Það er eitthvað sérstaklega notalegt við fallega uppábúið rúm með mjúkum rúmfötum sem mann langar einfaldlega að skríða upp í.

Speglar geta gert meira en að stækka rýmið

Speglar eru ekki aðeins fallegir innanhússmunir heldur geta þeir líka bætt nýrri vídd við svefnherbergið.

Vel staðsettur spegill getur skapað spennandi sjónarhorn og aukið meðvitund um eigin líkama og nándina við makann.

Það þarf alls ekki að hengja spegil yfir rúmið. Stór gólfspegill, spegill við hliðina á legubekk eða á vegg á móti rúminu getur verið jafn áhrifaríkur.

Spegill nálægt glugga hefur auk þess þann kost að endurkasta dagsbirtu og láta herbergið virðast bjartara og stærra.

Ef spegill er hengdur yfir rúm er hins vegar sérstaklega mikilvægt að tryggja örugga og faglega uppsetningu.

Svefnherbergið á að vera griðastaður

Þegar öllu er á botninn hvolft snýst kynþokkafullt svefnherbergi ekki um að fylla það af rauðum ljósum, silkirúmfötum eða dýrum húsgögnum.

Það snýst miklu frekar um að skapa umhverfi þar sem okkur líður vel, getum slakað á og fundið fyrir nánd.

Eins og kynlífsþerapistinn Melanie Greenberg bendir á er fallega innréttað svefnherbergi engin trygging fyrir aukinni kynlöngun. En rými sem hjálpar okkur að gleyma áhyggjum, tengjast eigin skynfærum og njóta samverunnar getur sannarlega hjálpað til.

Og stundum er fyrsta skrefið einfaldlega að taka saman þvottinn af rúminu.

内容来自 Mbl.is - Smartland,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab