Söguleg ráðning hjá Manchester United – Fyrsta konan í þjálfarateyminu

Manchester United er að fara að skrifa nýjan kafla í sögu félagsins með ráðningu Sílviu Tuya, sem verður fyrsta konan til að taka sæti í þjálfarateymi aðalliðs karla.

Tuya kemur til félagsins ásamt Mauricio Pochettino, nýjum knattspyrnustjóra United, en þau störfuðu saman hjá bandaríska karlalandsliðinu.

Hún mun sjá um styrktar- og líkamsþjálfun leikmanna og starfa náið með Pochettino og syni hans, Sebastiano, sem er einnig í þjálfarateyminu.

Tuya er með doktorsgráðu á sviði afreksíþrótta og hefur meðal annars starfað hjá Barcelona-háskóla, Levante og Badalona á Spáni.

Hún hefur einnig reynslu af þjálfun í öðrum íþróttagreinum, þar á meðal tennis, körfubolta og ruðningi.

Tuya mun taka virkan þátt í daglegum æfingum United og sitja á varamannabekk liðsins á leikdögum.

Pochettino tekur við United eftir brottrekstur Michael Carrick og stýrir liðinu í fyrsta sinn gegn Liverpool á Anfield um næstu helgi.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab