Óttast að fyrrverandi eiginkona hans fái reynslulausn – Drekkti ungum sonum þeirra fyrir rúmlega 30 árum
Susan Smith myrti kornunga syni sína fyrir rúmum 30 árum. Fyrir vikið var hún dæmd í lífstíðarfangelsi með þeim fyrirvara þó að hún myndi með tímanum öðlast rétt til að sækja um reynslulausn. Henni var neitað um slíkt árið 2024 en fær á morgun annað tækifæri til að sannfæra náðunarnefnd um að hún eigi skilið að öðlast frelsið á ný.
David Smith vonar þó að nefndin hafni beiðninni aftur. Hann lýsir því í samtali við People hvernig tíminn geti ekki læknað öll sár. Synir hans, Alex og Michael, voru annars vegar 14 mánaða og hins vegar 3 ára, þegar móðir þeirra, eiginkona David, drekkti þeim.
Þessi skammi tími sem drengirnir lifðu er sérstaklega áberandi í ljósi þess tíma sem liðinn er. David segist ekki geta yljað sér við hlýjar minningar um tíma þeirra saman. Hann á almennar minningar um hvernig eldri drengurinn bar sum orð vitlaust fram en yfir annað er búið að fenna yfir.
„Orð sem þeir stöfuðu eða báru fram á barnalegan máta, á sinn eigin barnalega máta. En minningar, þær eru engar.“
Drengirnir búa þó enn í hjarta hans og ekki líður dagur án þess að David hugsi til þeirra.
Susan játaði árið 1994 að hafa viljandi leyft bifreið sinni að renna út í John D. Long-vatnið í Suður-Karólínu. Drengirnir voru í bílstólum sínum í aftursæti bifreiðarinnar. Susan hafði reynt að hylma yfir brot sitt með því að ljúga því að svartur maður hefði rænt bifreið hennar. Áður en bíllinn fannst í vatninu þóttist Susan vera frá sér af áhyggjum og steig fram í sjónvarpinu þar sem hún grátbað ræningjann um að skila börnum sínum.
David óttast að Susan verði látin laus gegn skilorði.
„Margir segja mér að það sé ekki að fara að gerast en ég vildi að það eitt myndi duga til að koma í veg fyrir það, en það er engin trygging fyrir því. Þetta er allt í höndum náðunarnefndarinnar og ég óttast að í þetta skiptið fái hún reynslulausn.“
David á tvö uppkomin börn með eiginkonu sinni, Tiffany, sem hann kynntist eftir harmleikinn. Hann segir stuðning fjölskyldu sinnar skipta sköpum á svona stundum og eins finnst honum það huggun harmi gegn að almenningur sé enn að syrgja syni hans. Fólk komi að gröfum drengjanna með leikföng og annað í minningu þeirra.
„Það er svo fallega gert.“
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗