Mátti ekki leggja fram veð vegna kaupa á sjálfri sér
Dómstóllinn taldi að bílaleigan hefði brotið gegn lögum um einkahlutafélög með því að veðsetja eigin fasteign til að tryggja lán sem kaupandi tók til að fjármagna kaup á félaginu. mbl.is/Golli
Landsréttur staðfesti í gær tvo úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að kröfur tveggja sjóða í rekstri Kviku eignastýringar nytu ekki veðréttar við gjaldþrotaskipti Bílaleigu Reykjavíkur.
Dómstóllinn taldi að bílaleigan hefði brotið gegn lögum um einkahlutafélög með því að veðsetja eigin fasteign til að tryggja lán sem kaupandi tók til að fjármagna kaup á félaginu.
Kröfurnar á hendur kaupandanum, Bergmáli fjárfestingum, námu samtals 194,5 milljónum króna þegar bú bílaleigunnar var tekið til gjaldþrotaskipta í maí 2024. Síðar voru greiddar samtals 20 milljónir króna inn á kröfurnar.
Deilt var um hvort sjóðirnir ættu veðrétt í fasteigninni að Arnarvelli 4 í Suðurnesjabæ eða í söluandvirði hennar.
Úrskurðirnir voru kveðnir upp samhliða. Hvort mál laut að sínu skuldabréfi en Kvika byggði á sama tryggingarbréfi í báðum málum. Kviku eignastýringu var gert að greiða þrotabúinu samtals 7,5 milljónir króna í málskostnað á báðum dómstigum.
Bílaleigan setti fasteignina að veði
Bergmál fjárfestingar fengu 175 milljóna króna lán hjá GAMMA Credit Opportunity Fund til að kaupa Bílaleigu Reykjavíkur árið 2017. Sjóðurinn heitir nú Credit Opportunity Fund og er í rekstri Kviku eignastýringar.
Samkvæmt fjármögnunarsamningnum átti bílaleigan að setja fasteignina að Arnarvelli 4 að veði fyrir láninu. Hún gaf í því skyni út 190 milljóna króna tryggingarbréf.
Við endurfjármögnun lánsins árið 2020 gáfu Bergmál út tvö skuldabréf, annað til Credit Opportunity Fund og hitt til Kviku innlendra skuldabréfa. Tryggingarbréfinu frá 2017 var ætlað að ná til beggja skuldabréfanna.
Kaupsamningurinn var aldrei efndur
Kvika hélt því fram að Bergmál hefðu þegar eignast fasteignina þegar hún var veðsett. Félögin höfðu gert kaupsamning um eignina tæpum mánuði áður en lánið var veitt.
Landsréttur taldi að Bergmál hefðu öðlast skilyrtan eignarrétt með kaupsamningnum en að bílaleigan hefði áfram átt eignarrétt að fasteigninni. Bergmál efndu aldrei samninginn, honum var aldrei þinglýst og ekkert afsal var gefið út. Í tryggingarbréfinu var bílaleigan sjálf tilgreind sem eigandi fasteignarinnar og veðsali.
Dómstóllinn taldi því að bílaleigan hefði lagt fram veð til að greiða fyrir kaupum á hlutum í sjálfri sér.
Að mati Landsréttar gekk sérstakt bann laga um einkahlutafélög við slíkri fjármögnun framar almennri heimild félags til að tryggja skuldbindingar móðurfélags síns.
Lögmaður á vegum lánveitandans hafði varað við því að veðsetningin kynni að brjóta gegn lögunum. Þrátt fyrir það gekk lánveitandinn ekki úr skugga um að eignarrétturinn færðist að fullu til Bergmáls og hagaði tryggingunum þannig að gert var ráð fyrir að bílaleigan ætti eignina áfram. Landsréttur taldi veðsetninguna því ekki bindandi fyrir þrotabúið.
Sama niðurstaða þótt sönnunarbyrðin hvíldi á þrotabúinu
Landsréttur komst að sömu niðurstöðu og héraðsdómur um gildi veðsins en lagði annað mat á sönnunarbyrðina. Þar sem Kvika hafði lagt fram gögn um fjárkröfurnar og sýnt fram á að veðinu hefði verið ætlað að tryggja þær hvíldi það á þrotabúinu að sýna fram á að veðsetningin væri ógild. Landsréttur taldi að búið hefði sýnt fram á það.
Rétturinn hafnaði einnig þeirri málsástæðu Kviku að skiptastjóri hefði brugðist of seint við. Skiptastjórinn hafnaði kröfunum um veðrétt og afturkallaði veðsetninguna tæpum þremur mánuðum eftir að bú bílaleigunnar var tekið til gjaldþrotaskipta.
内容来自 mbl.is - Viðskiptafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693247.jpg)