ÍR áfram þrátt fyrir fimmtán mörk Katrínar

Katrín Helga Davíðsdóttir skoraði 15 mörk.

Katrín Helga Davíðsdóttir skoraði 15 mörk. mbl.is/Kristinn Magnússon

ÍR tryggði sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta með 31:25-sigri á Aftureldingu á útivelli í kvöld.

Úrvalsdeildarlið ÍR var fimm mörkum yfir í hálfleik, 15:10, og vann að lokum sex marka sigur á liði Aftureldingar úr næstefstu deild.

Sara Dögg Hjaltadóttir var markahæst hjá ÍR með tíu mörk og Sólveig Lára K jærnested skoraði sex.

Katrín Helga Davíðsdóttir gerði sér lítið fyrir og skoraði fimmtán af 25 mörkum Aftureldingar. Andrea Ósk Þorkelsdóttir bætti við þremur mörkum.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab