Reynsla Ingvars nýtist í nýju starfi

Ingvar Ómarsson er nýr afreksstjóri.

Ingvar Ómarsson er nýr afreksstjóri. Ljósmynd/Hjólreiðasamband Íslands

Hjólreiðasamband Íslands hefur ráðið Ingvar Ómarsson sem afreksstjóra sambandsins. Hann mun hafa umsjón með afreks- og landsliðsstarfi þess.

Ingvar hefur verið í fremstu röð íslenskra hjólreiðamanna frá árinu 2014. Hann hefur unnið fjölda Íslandsmeistaratitla í ólíkum greinum, ítrekað verið valinn hjólreiðamaður ársins og keppt á heims- og Evrópumeistaramótum fyrir Íslands hönd.

Meðal verkefna Ingvars verða stefnumótun, skipulagning landsliðsverkefna og stuðningur við íslenskt afrekshjólreiðafólk.

Í tilkynningu sambandsins segir að ráðningunni sé ætlað að efla faglegt starf og skapa skýrari umgjörð fyrir afreksfólk og næstu kynslóðir hjólreiðamanna.

Sambandið þakkar jafnframt Conor Campbell fyrir samstarfið og framlag hans til afreks- og landsliðsstarfsins undanfarin tvö ár.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab