Uppselt hjá Bubba
Verslunaraðstaða Bubba í Kringlunni. Textaverkin eru uppseld löngu fyrir jól, en verða að sjálfsögðu í boði á ný á næsta ári. mbl.is/Eggert Jóhannesson
„Textaverkin eru farin,“ segir Bubbi Morthens sínum ákveðna en glaðlega rómi þegar mbl.is nær af honum tali og spyr hann út í útgáfu ársins á söluvarningi sem notið hefur árlegra vinsælda síðustu ár, innrömmuðum textabútum úr verkum hans sem hann handskrifar sjálfur og selur í lit eða svarthvít.
„Já, elsku vinur, þetta fór á nokkrum dögum, samt eru enn til einhver Rómeó og Júlíuverk og eitthvað smáræði,“ játar hann og þar með strax búinn að bakka að hluta út úr fyrirsögninni hér að ofan, en við látum hana standa, aðallagerinn er farinn, enda líkast til eiguleg verk í stofum og dyngjum aðdáenda.
„Sérpöntuðu verkin fuku bara út, þau mála ég með indversku bleki á pappír,“ segir Bubbi og bætir því við að hann verði að sjálfsögðu á ferð með textaverk sín á ný að ári.
Þú ætlar ekki að bæta við aukaútgáfu svona úr því enn er nokkuð langt til jóla?
Ekki er hlaupið að því að sögn Bubba. „Ég panta rammana frá Þýskalandi og það þarf að gera með margra mánaða fyrirvara, ég pantaði 600 ramma í ár og svo þarf ég að starta heilli prentsmiðju til að búa til eitt verk og hönnuði,“ segir hann frá, ekki hlaupið að því að vera íslenskt dægurlagagoð eins og sumir synir og dætur Íslands hafa fengið að reyna á eigin skinni.
„Meira getur enginn listamaður beðið um,“ sagði Bubbi Morthens við íslenska þjóð hér á mbl.is eftir afmælistónleikana 6. júní í sumar, þakklætið og auðmýktin alltaf á sínum stað hjá karli. mbl.is/Eyþór
Skilgreining Bubba Morthens á þjóðskáldi
„Ef þú værir einhver maður með tíu þúsund milljónir á bók gætirðu hugsanlega talað mig til í einhverja vitleysu,“ segir Bubbi og hlær gjallandi hlátri, staddur í ökuferð með syni sínum ungum, og blaðamaður játar að vera það ekki eins og er, á ekki einu sinni bankabók, hvað þá fjármagn á slíkri.
En þú ferð aftur í gang með þetta á næsta ári eða hvað? Nýorðinn sjötugur og fólk er nú ekkert að gefast upp á þér.
„Já, ég verð algjörlega með þetta aftur á næsta ári og ég get sagt þér að ég er mjög þakklátur fyrir þjóðina, til að vera í þeim status sem ég er núna þarftu að vera mjög umdeildur en líka mjög elskaður og ef þú ert þar þá ertu orðinn þjóðskáld,“ segir Bubbi, skilgreiningin komin.
Margir hefðu nú sperrt eyrun hefði frést af Bubba Morthens með verslun í Kringlunni þegar hún opnaði í ágúst 1987, á milli platanna Frelsis til sölu og Dögunar. Sú er þó raunin nú þótt varningurinn sé uppseldur þetta árið. mbl.is/Eggert Jóhannesson
Sippaði 600 og boxaði fjórar lotur
Þetta þjóðskáld virðist í betra formi en mörg önnur sem þjóðin hefur átt um dagana og vissulega var tekið á því í morgun.
„Ég fór og tók bicep og tricep og axlir og svo sippaði ég 600, boxaði fjórar lotur, kastaði fimmtán kílóa bolta og hljóp tröppur,“ segir hann frá og bætir því aðspurður við að ólympísku lyftingarnar, sem hann keppti í á öldinni sem leið, séu enn þá með í grunnkerfinu hjá honum, snörun og jafnhöttun voru á dagskrá í gær.
„Ég get sagt þér að við munum deyja í formi,“ segir Bubbi af sannfæringu og nefnir tvennt í stöðunni þegar dauðans óvissi tími rennur upp. „Það er að deyja við laxveiðiá eða deyja einn standandi bara heima, „let me die in my footsteps“ eins og Dylan sagði,“ segir Bubbi Morthens að lokum, textaverk að sjálfsögðu aftur í sölu á næsta ári, en eitthvert smotterí eftir af Rómeó og Júlíu fyrir þá sem eru fyrr á ferð í jólagjafakaupum en þorri Íslendinga.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗

