Carrick ósáttur við framkomu United
Michael Carrick er sár yfir því hvernig Manchester United stóð að brottrekstri hans sem knattspyrnustjóra, samkvæmt The Telegraph.
Carrick var rekinn síðastliðinn fimmtudag, þremur dögum eftir að fréttir bárust af því að hann myndi missa starfið.
Hann hélt áfram að stýra æfingum á meðan stjórnendur félagsins gengu frá ráðningu eftirmanns hans, Mauricio Pochettino, sem hóf störf í dag.
Gary Neville, fyrrverandi varnarmaður United, kallaði framkomuna „einfaldlega viðbjóðslega“ í Stick to Football og sagði hana varpa slæmu ljósi á forystu félagsins.
United er í fallsæti með aðeins einn deildarsigur á tímabilinu.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗