Forráðamenn nemenda við Hagaskóla upplýstir um atvik í gær - Tveir starfsmenn „sáust kyssast“

Stjórnendur Hagaskóla í Vesturbænum sendu forráðamönnum nemenda við skólann tölvupóst í dag vegna atviks sem átti sér stað í gær, en nemendur munu hafa séð til tveggja starfsmanna sem eru sagðir hafa verið að kyssast.

Málið mun nú vera til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs borgarinnar og eins hefur verið lögð áhersla á að starfsfólk skólans sé sýnilegt á gögnum ef nemendur hafa spurningar eða vilja ræða um atvikið.

Erindið til forráðamanna var eftirfarandi:

„Kæru foreldrar

Tveir starfsmenn skólans, sem töldu sig vera í einrúmi, sáust kyssast í gegnum sandblásið gler í gær. Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs.

Í kjölfarið var lögð áhersla á að starfsfólk væri sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess ef þeir hefðu spurningar eða vildu ræða málið.

Ekki var talið tilefni til að senda sérstakar upplýsingar um málið til allra foreldra. Þar sem fjölmiðlar hafa verið að spyrjast fyrir um málið teljum við þó rétt að gera stuttlega grein fyrir því og viðbrögðum skólans.“

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab