Íslandsmeistari samdi við Val
Körfuknattleikskonan Vilborg Jónsdóttir hefur gert samning við Val. Félagið tilkynnti um komu leikstjórnandans á samfélagsmiðlum.
Vilborg er uppalin hjá Njarðvík og varð Íslandsmeistari með liðinu árið 2022. Hún lék einnig með yngri landsliðum Íslands áður en hún fór til Bandaríkjanna í háskólanám.
„Ég er mjög spennt fyrir því að koma til liðs við Val og þakka Jamil fyrir að treysta mér fyrir því að koma inn í liðið. Ég hlakka til þess að leggja mitt að mörkum til þess að gefa okkur sem bestan séns að sækja titilinn,“ segir Vilborg í tilkynningunni.
Jamil Abiad, þjálfari Vals, segir Vilborgu þegar hafa tengst hópnum vel og fagnar því að fá reynslumikinn bakvörð til liðsins.
Valur situr í sjötta sæti úrvalsdeildarinnar með átta stig eftir sex leiki, fjóra sigra og tvö töp.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗