Hjónabandið var vonbrigði

Ben Affleck og Jennifer Lopez voru gift í tvo ár sem voru mikil vonbrigði að mati Lopez. AFP/Filippo MONTEFORTE

Leik- og söngkonan Jennifer Lopez segir að skilnaðurinn við leikarann Ben Affleck hafi verið vonbrigði. Lopez hefur gengið fjórum sinnum upp að altarinu og fjórum sinnum hefur hún þurft að skrifa undir skilnaðarpappíra. 

Lopez sótti um skilnað frá Affleck árið 2024 eftir tveggja ára hjónaband. Sambandið við Affleck var henni erfitt á allan hátt, þetta kemur fram í hlaðvarpsviðtali við hana að því fram kemur á vef Page Six. Næst ætlar hún að halda samböndum sínum frá sviðsljósinu. 

Er búin að vinna í sjálfri sér

Lopez er þó ekki búin að gefast upp á ástinni en viðurkenndi að hún hafi þurft að græða ákveðið tóm innra með henni. Áður fyrr fór hún úr einu sambandi í það næsta, með það í huga að hinn eini sanni væri handan við hornið. Oft hafi makar hennar komið illa fram við hana. 

Stjarnan er búin að komast að því hvernig hún getur elskað sjálfa sig betur og heldur að hún geri ekki sömu mistökin aftur. Lopez gaf þeim einnig ráð sem standa frammi fyrir endalokum hjónabands síns.

„Ég held að ráð mitt varðandi skilnað sé það sama og ráð mitt varðandi allt annað, sem er að haga sér alltaf þannig að maður verði stoltur af því þegar maður lítur til baka,“ sagði hún.

Fjögur misheppnuð hjónabönd

Hjónabandi Lopez og Affleck lauk árið 2024. Lopez var einnig gift leikaranum Ojani Noa frá 1997 til 1998. Hún var gift dansaranum Chris Judd frá 2001 til 2003 og tónlistarmanninum Marc Anthony frá 2004 til 2014. Lopez og Anthony eiga saman tvíburana Max og Oskar sem eru 18 ára. 

Jennifer Lopez er búin að vinna í sjálfri sér.

Jennifer Lopez er búin að vinna í sjálfri sér. AFP/JC OLIVERA

内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab