Varð háð þessari algengu heilbrigðisvöru og það kostaði hana þjáningu og stórfé – „Ég las ekki á kassann“
Kristinn H. Guðnason
Miðvikudaginn 18. nóvember 2026 21:30
Louise segist ekki hafa lesið nógu vel á kassann og notað spreyið allt of lengi. Mynd/Instagram
Þrítug kona frá Wales varð alvarlega háð nefspreyi. Það kostaði hana bæði miklar þjáningar og kostnað. Henni segist hafa liðið eins og fanga í eigin líkama.
Breska ríkisútvarpið BBC greinir frá þessu.
Louise Gough, þrítug kona frá bænum Caerphilly í Wales, segist hafa gert þau mistök að lesa ekki smáa letrið þegar hún notaði Sudafed nefsprey eftir slæmt kvef. Hélt hún áfram að nota spreyið og ánetjaðist því.
„Ég notaði það þegar ég var með kvef og á augabragði, innan 10 sekúndna, losnaði stíflan í nefinu,“ segir Louise. „Léttirinn var stórkostlegur.“
Vítahringur
En það sem hún áttaði sig ekki á er að nefsprey sem þetta á aðeins að nota til skamms tíma. Ítrekuð notkun getur valdið því að nefstíflur versna. Þá notar viðkomandi meira af nefspreyi og til verður vítahringur.
Louise var föst í slíkum vítahring og það kostaði hana mikil óþægindi og mikinn kostnað. Flaskan kostar um 7 pund, eða um 1200 krónur, í Bretlandi. Reiknar hún með að hafa eytt um 2 þúsund pundum, eða um 330 þúsund krónum, í nefsprey á ekki löngum tíma. Maki hennar gerði athugasemdir við þessa miklu eyðslu hennar í nefsprey.
„Þetta er að hluta til mér að kenna. Ég las ekki á kassann og gerði mér ekki grein fyrir því að aðeins mætti nota þetta í ákveðnu magni á tilteknu tímabili,“ segir Louise. „Enginn varaði mig við þegar ég keypti þetta. Þetta breyttist í hroðalegan vítahring.“
Fangi í eigin líkama
Nefsprey sem þetta á ekki að nota í lengur en 5 til 7 daga en Louise notaði það miklu lengur. Hafði hún myndað ástand sem kallast rhintis medicamentosa, eða króníska nefstíflu af völdum lyfja. Bragð og lyktarskynið fór út um gluggann.
„Ég fann fyrir miklum kvíða ef ég var ekki með flösku á mér,“ segir Louise. Þetta hafi sérstaklega verið slæmt þegar hún var úti með maka mínum, því þá þurfti hún stundum að biðja hann að redda einni flösku. Það fór virkilega í taugarnar á honum. „Mér leið eins og fanga í eigin líkama og ég gat ekki losnað,“ segir Louise.
Ekki fengið skynið til baka
Fyrir þremur árum síðan ákvað Louise að rjúfa vítahringinn. Þá hafði hún notað tvær flöskur af nefspreyi í ellefu daga ferð til Grikklands. Hún segir að það hafi tekið tíma að venja sig af þessu. Fyrstu dagana hafi hún varla getað andað.
Alls tók það um mánuð að venja sig af spreyinu. Þrátt fyrir að langt sé um liðið hefur hún enn þá ekki fengið bragð og lyktarskynið að fullu til baka.
Fleiri fréttir
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗