Róa lífróður á milljarða eftirgjöf
Fyrsta skóflustunga að nýrri Þjóðarhöll í Laugardal var tekin 12. nóvember síðastliðinn. mbl.is/Eyþór
Íslenskir aðalverktakar, ÍAV, sem hafa tekið að sér hönnun og byggingu Þjóðarhallar fyrir tæpa 17 milljarða króna, hafa tapað tæpum 3,2 milljörðum á 18 mánuðum. Eigandi félagsins hefur fjármagnað tapreksturinn og gaf samkvæmt nýbirtum reikningum eftir 3,3 milljarða króna skuld hinn 30. júní síðastliðinn. Við það varð eigið fé aftur jákvætt. Stjórnendur gera engu að síður ráð fyrir áframhaldandi verulegu tapi á þessu ári og stefna að jafnvægi í rekstri árið 2027.
Þetta kemur fram í ársreikningi ÍAV fyrir 2025 og endurskoðuðum árshlutareikningi fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2026. Reikningarnir bera báðir dagsetninguna 13. nóvember, daginn eftir að fyrsta skóflustungan var tekin að Þjóðarhöll í Laugardal og tveimur sólarhringum eftir að Morgunblaðið beindi spurningum um fjárhagslegt hæfi fyrirtækisins til forsvarsmanna þess, Þjóðarhallar ehf., fjármála- og efnahagsráðuneytisins, Reykjavíkurborgar, mennta- og barnamálaráðuneytisins, Fjársýslu ríkisins og Framkvæmdasýslunnar. Enginn þessara aðila hefur svarað fyrirspurnunum en aðeins staðfest móttöku þeirra.
Reikningum ÍAV var skilað til ársreikningaskrár 16. nóvember, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins.
Tap eykst og tekjur minnka
Tap ÍAV nam 1.668 milljónum króna á síðasta ári, samanborið við 936 milljónir árið 2024. Eigið fé var neikvætt um 637 milljónir í árslok 2025. Á fyrstu sex mánuðum þessa árs bættust síðan við 1.505 milljónir í tap, en tapið á sama tímabili í fyrra var 914 milljónir.
Samhliða þessu hafa tekjur dregist verulega saman. Þær námu 3.898 milljónum króna á fyrri árshelmingi, samanborið við 7.488 milljónir á sama tíma í fyrra. Samdrátturinn er því um 48%. Ársverkum fækkaði úr 243 í 211 milli tímabila.
Fjárþörfin er mikil. Handbært fé til rekstrar var neikvætt um 2.114 milljónir króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Í skýrslu stjórnar segir að eigandinn hafi lagt félaginu til um 2.096 milljónir í rekstrarfé á tímabilinu til að standa undir taprekstrinum. Handbært fé í lok júní nam aðeins rúmum átta milljónum króna.
Heldur félaginu á floti
Í skýrslu stjórnar eru hækkandi vaxtabyrði, styrking krónunnar gagnvart bandaríkjadal, breytingar á verkframkvæmdum og þröng tímamörk í samningum nefnd meðal helstu skýringa á tapinu árið 2025. Þá hafi aukin samkeppni á útboðsmarkaði gert vart við sig þegar hægði á íbúðaframkvæmdum.
Stjórnendur segjast vinna að bættum rekstri með auknu utanumhaldi verkefna, uppbyggingu innviða og hagræðingu. Í ársreikningnum er jafnframt boðað að velta verði minni árið 2026 en árið áður og áfram verði talsvert tap. Markmiðið sé að ná rekstrinum í jafnvægi á næsta ári.
Björgun fjárhagsins byggist á stuðningi eigandans. Samkvæmt árshlutareikningnum voru 3,3 milljarða króna skuldir gefnar eftir 30. júní. Eftir þá ráðstöfun er eigið fé sagt 411 milljónir og eiginfjárhlutfall 11,3%. Yfirlýst markmið endurskipulagningarinnar var að koma eigin fé yfir 400 milljónir og hlutfallinu yfir 10%. Fyrir því er rík ástæða, enda miðaði hæfi í þátttöku fyrirtækisins í sínu langstærsta verkefni við það hlutfall.
Móðurfélagið hefur einnig staðfest áframhaldandi stuðning eftir þörfum í náinni framtíð, svo ÍAV geti staðið straum af rekstrarkostnaði og skuldbindingum á gjalddaga. Á þeim forsendum telja stjórnendur ekki vafa um rekstrarhæfi félagsins.
Risaverkefni í fanginu
Fjárhagsleg endurskipulagning ÍAV fer fram samhliða því að félagið tekur að sér eitt stærsta opinbera byggingarverkefni landsins. Hinn 15. júní var tilkynnt að Þjóðarhöll ehf. hefði valið tilboð ÍAV og samstarfsaðila í hönnun og byggingu hallarinnar. Tvö endanleg tilboð bárust, frá teymum ÍAV og Ístaks.
Skuldaniðurfellingin er þannig færð á 30. júní, hálfum mánuði eftir opinbera tilkynningu um val tilboðsins. Verksamningurinn var undirritaður 30. september. Samningsfjárhæðin er 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundin byggingarkostnaðarvísitölu frá janúar 2026. Ríkið og Reykjavíkurborg fjármagna framkvæmdina.
Fyrsta skóflustungan var tekin 12. nóvember að viðstöddum ráðherrum og borgarstjóra. Daginn eftir staðfestu stjórnendur og endurskoðandi reikningana sem varpa nú ljósi á umfang tapsins og nauðsyn eigendastuðningsins. Höllinni á að skila fullbúinni í janúar 2030.
Eigendastuðningur er félaginu ekki nýr. Árið 2024 voru 760 milljóna króna skuldir þess við móðurfélagið gefnar eftir. Sama ár styrkti endurmat fasteigna eigið fé um tæpar 364 milljónir að teknu tilliti til skatta. Þrátt fyrir þær ráðstafanir var eigið fé uppurið ári síðar. Nýja skuldaniðurfellingin leysir því ekki ein og sér rekstrarvanda félagsins. Áframhaldandi tap getur gengið á hið endurbætta eigið fé. Fyrirheit eigandans um frekari stuðning skipta þess vegna áfram miklu um rekstur félagsins. Það gerir ekki síður risaverkefnið í Laugardal. Umfang þess jafngildir tveggja ára heildarveltu félagsins samkvæmt nýjum áætlunum þess.
Þriggja áratuga bið
Höllin rís
Þjóðarhöllin í Laugardal á að verða nýr heimavöllur íslenskra landsliða í innanhússíþróttum og fjölnota hús fyrir íþróttir, tónleika og aðra stórviðburði. Henni er jafnframt ætlað að bæta aðstöðu skóla og íþróttafélaga í nágrenninu. Gert er ráð fyrir 8.600 sætum og rými fyrir allt að 12.000 gesti á viðburðum.
Ríkið og Reykjavíkurborg standa saman að framkvæmdinni í gegnum Þjóðarhöll ehf., sem var stofnað í janúar 2024. Ríkið á 55% félagsins og borgin 45%. Mennta- og barnamálaráðuneytið fer með verkefnið fyrir hönd ríkisins, með aðkomu fjármála- og efnahagsráðuneytisins. reykjavik.is
Hugmyndir um nýtt íþróttahús voru ræddar þegar árið 1994, í aðdraganda heimsmeistaramótsins í handknattleik á Íslandi 1995. Laugardalshöll, sem tekin var í notkun 1965, uppfyllir ekki lengur alþjóðlegar kröfur og landsliðin hafa þurft undanþágur til að leika þar.
Árið 2020 var skipaður starfshópur um þjóðarleikvang fyrir innanhússíþróttir. Í maí 2022 undirrituðu ríki og borg viljayfirlýsingu um nýja höll og síðar sama ár var ákveðið að hún risi við hlið Laugardalshallar.
Forval hófst í mars 2024. Í júní 2026 var tilboð Íslenskra aðalverktaka og samstarfsaðila valið. Verksamningur var undirritaður 30. september, að fjárhæð 16,825 milljarðar króna með virðisaukaskatti, bundinni byggingarkostnaðarvísitölu. Þjóðarhöll
Fyrsta skóflustungan var tekin 12. nóvember síðastliðinn. Stefnt er að verklokum í janúar 2030.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗