Kossaflens kennara dregur dilk á eftir sér
Skólastjórnendur í Hagaskóla í Reykjavík sendu forráðamönnum barna í skólanum bréf í dag í kjölfar „atviks“ í skólanum, eins og það var orðað.
Umrætt atvik var að starfsmenn í skólanum höfðu verið að kyssast.
„Tveir starfsmenn skólans, sem töldu sig vera í einrúmi, sáust kyssast í gegnum sandblásið gler í gær.
Skólastjórnendur hafa rætt við hlutaðeigandi og málið er til skoðunar í samráði við mannauðsskrifstofu skóla- og frístundasviðs,“ segir í pósti frá starfandi skólastjóra Hagaskóla.
„Í kjölfarið var lögð áhersla á að starfsfólk væri sýnilegt á göngum skólans svo nemendur gætu leitað til þess ef þeir hefðu spurningar eða vildu ræða málið.
Ekki var talið tilefni til að senda sérstakar upplýsingar um málið til allra foreldra. Þar sem fjölmiðlar hafa verið að spyrjast fyrir um málið teljum við þó rétt að gera stuttlega grein fyrir því og viðbrögðum skólans,“ segir þar enn fremur.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗