Lampard segir frá óvæntum stuðningsmanni - Fær regluleg skilaboð frá Ferguson

Frank Lampard, knattspyrnustjóri Coventry City, hefur greint frá því að Sir Alex Ferguson, fyrrverandi knattspyrnustjóri Manchester United, hafi reglulega sent honum hvatningarskilaboð og góð ráð.

Lampard, sem kom Coventry upp í ensku úrvalsdeildina á síðasta tímabili, kynntist Ferguson betur þegar hann stýrði Everton.

„Ég hitti hann í kaffi þegar ég var hjá Everton. Við ræddum saman í um klukkutíma og það var frábært. Hann hefur alltaf verið ein af mínum fyrirmyndum,“ sagði Lampard í hlaðvarpinu The Rest is Football.

Ferguson sendi Lampard meðal annars hamingjuóskir þegar hann var valinn knattspyrnustjóri ársins í Championship-deildinni og aftur eftir 3-1 sigur Coventry gegn Sunderland í síðasta mánuði.

„Hann sendi mér nokkuð löng skilaboð og óskaði mér til hamingju með úrslitin. Síðan deildi hann reynslu sinni og góðum ráðum.“

Lampard segist afar þakklátur fyrir stuðninginn og telur reynslu Ferguson ómetanlega.

„Hann skilur betur en flestir hvaða áskoranir fylgja því að stýra knattspyrnuliði,“ sagði Lampard.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab