Nýr 460 milljóna vefur Veðurstofunnar vekur ekki mikla lukku - „Hver eiginlega bað um þetta?“

Veðurstofa Íslands kynnti í gær nýja vefsíðu. Um er að ræða afrakstur vinnu sem hófst árið 2022. Samkvæmt mbl.is kostaði vefurinn í heildina 460 milljónir króna og er áætlað að árlegur kostnaður við rekstur og frekari þróun innviða tengdra vefnum verði á bilinu 50-70 milljónir króna.

Samningur var gerður við Origo að loknu útboði á vegum Ríkiskaupa, en þar auglýsti Veðurstofan eftir samstarfsaðila með fjölbreytta tæknilega sérþekkingu og faglega getu til að sinna verkefninu. Þessi leið var farin frekar en að óska eftir tilboði í fyrir fram skilgreinda verkþætti.

Ekki er ljóst hversu mikið af þeim 460 milljónum króna sem vefurinn kostaði í heildina rann til Origo.

Segja má að vefurinn hafi ekki vakið mikla lukku og er Veðurstofan tilkynnti breytinguna logaði athugasemdakerfið við færsluna og víðar á Facebook. Margir bentu á að engin ástæða hafi verið til að breyta vef sem landsmenn þekktu vel og líkaði. Einnig hefur nýi vefurinn verið kallaður kaldur og litlaus og að þar sé flóknara en áður að afla sér og lesa úr upplýsingum um veðrið.

Eftirfarandi hefur verið sagt í athugasemdakerfum síðan vefurinn fór í loftið:

„Nei, ég get ekki þessa nýju síðu – hér eftir spyr ég gervigreindina“

„Þessi nýja síða er ekki til bóta eins og ætti að vera. Alls ekki notendavæn.“

„Hvað fær fólk til að gera hluti sem virka verri? Þetta kallar á rannsókn.“

„Nú þarf að loka óveðursstofunni“

„Húsbóndinn á heimilinu er ekki par sáttur“

„Það var ekkert að hinum, þessi margfalt verri“

„Þetta er bara fáránlegt! Eins og veðurfréttir í stundinni okkar að horfa á þetta! Hitt virkaði bara miklu betur því ég notaði þetta á hverjum degi út af vinnu og skýrari sviðsmynd! Alltaf þarf að fucka í öllu sem virkar!“

„HRÆÐILEGT!!! Ég finn ekkert sem ég var vön að sjá við fyrstu sýn, þetta er bara ógreinilegt og ruglandi. Vona að eldri ásýnd verði áfram.“

„Hörmung! Vantar einfalt yfirlitskort eins og var á forsíðu gamla. Vind. Hita, úrkomu. Þarna hafa einhverjir oflátir tölvunörðar hugsað yfir sig. Þetta er of flókið. Illskiljanlegt. Vonlaust að finna það sem vantar. Og síðast en ekki síst. Það var engin þörf á breytingum. Alls ekki nein. Sóun á skattfé sem gerir þetta verr aðgengilegt og vonlaust fyrir eldra fólk.“

„Þetta er hræðileg afturför fyrir fólk sem er að nota vefinn daglega. Hver eiginlega bað um þetta? Var þörf á þessu?“

„Nú er ég ekki gamall, en þetta er óskiljanleg síða fyrir mig líka. Það má endilega sleppa því að breyta þeim hlutum sem þurfa einfaldlega ekki að breytast. Þetta er hörmuleg breyting.“

„Í ruslið með þetta“

„Er þetta gert til að fæla fólk frá því að leita sér upplýsinga um veður?“

„Skelfilegt, þessi nýja síða er ekki á nokkurn hátt gagnleg.“

Rétt er að geta þess að innan um neikvæðu athugasemdirnar má finna nokkrar jákvæðar þar sem meðal annars er bent á að það sé svolítið íslenskt að vera á móti öllum breytingum. Fyrir þá sem eiga erfitt með að venjast nýja vefnum er enn hægt að nálgast eldra viðmótið á eldri.vedur.is.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab