„Farið og kaupið Guðjohnsen“
Breski hlaðvarpsstjórnandinn Tom Garratt vill að West Bromwich Albion festi kaup á íslenska landsliðsframherjanum Andra Lucasi Guðjohnsen, sem hefur skorað tíu mörk fyrir Blackburn Rovers í ensku B-deildinni í knattspyrnu á tímabilinu.
Garratt fjallar um neðri deildir enska boltans í hlaðvarpinu The Pyramid Podcast. Hann hefur ítrekað hrósað Andra, sem er næstmarkahæstur í B-deildinni.
„Ég er að biðla til West Brom. Finnið peningana einhvers staðar. Þeir eru til einhvers staðar. Farið og kaupið Guðjohnsen,“ sagði Garratt í hlaðvarpinu og bætti við að Andri væri næstbesti framherji deildarinnar.
Blackburn situr í 13. sæti deildarinnar en Andri hefur alls gert ellefu mörk í fimmtán leikjum í öllum keppnum á tímabilinu.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Handbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗