Stefna á jákvæða afkomu á næsta ári
„Þetta er jákvæð niðurstaða og þrátt fyrir erfitt efnahagsumhverfi á Íslandi í dag er það skýrt markmið bæjarstjórnar að rekstur sveitarfélagsins verði í jafnvægi og haldið sé áfram að lækka álögur,“ segir Bragi Bjarnason bæjarstjóri Árborgar.
Fyrri umræða um fjárhagsáætlun Sveitarfélagsins Árborgar fyrir árið 2027 og þriggja ára áætlun til 2030 fór fram í bæjarstjórn Árborgar í dag.
Áætlunin gerir ráð fyrir 85,8 m.kr. jákvæðri rekstrarniðurstöðu í A- og B-hluta. Ytri efnahagsaðstæður, líkt og verðbólga, hafa talsverð neikvæð áhrif og mikilvægt er að gæta áfram aðhalds í rekstrinum, segir í tilkynningu.
„Áætlunin sýnir áframhaldandi bata í rekstri en há verðbólga hefur töluverð neikvæð áhrif á rekstur sveitarfélagsins á yfirstandandi ári og horfur fyrir árið 2027,“ segir Bragi enn fremur.
Í fjárhagsáætlun 2027 er gert ráð fyrir að rekstrarniðurstaða samstæðunnar, A- og B-hluta, verði jákvæð sem nemur 85,8 milljónum og að EBITDA verði jákvæð um 2.894 milljónir. Veltufé frá rekstri er áætlað 2.470 milljónir í samstæðu sveitarfélagsins, framlegðarhlutfallið verði 12,2% og skuldaviðmiðið 118,5%, sem er vel undir 150% viðmiði sveitarstjórnarlaga, segir í tilkynningu.
Þar segir einnig að íbúafjölgun í Árborg haldi áfram og áætlað sé að íbúafjöldinn verði í kringum 13.350 í lok árs 2026.
„Gjaldskrár sveitarfélagsins haldast óbreyttar eða hækka ekki umfram 2,5% markmið Seðlabanka Íslands milli ára. Samhliða eru álagningarhlutföll fasteignagjalda lækkuð sem skilar sér í auknum ávinningi fyrir íbúa og fyrirtæki. Áætla má að samantekið skili þessar tvær aðgerðir um 150 milljónum í aukna ráðstöfun til íbúa og fyrirtækja í Árborg,“ segir í tilkynningu.
内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗
