Innra ferðalag Braga Ólafssonar

Fyrir tveimur árum hóf tónlistarmaðurinn og rithöfundurinn Bragi Ólafsson ferðalag um sinn innri heim og sína ævi. Fyrir stuttu kom út bókin Innanríkið – Aðfangadagar, þar sem hann heldur ferðalaginu áfram.

Innanríkið – Alexíus, sem kom út 2024, var persónuleg frásögn af æsku Braga og fólkinu í kringum hann og minningar frá seinni árum, en í flestu ólík því sem kalla má hefðbundnar minningabækur eða ævisögur. Innanríkið – Aðfangadagar er áþekk að miklu leyti, en framvindan jafnvel snúnari.

Í viðtali segir Bragi að hugmyndin yfirtitli bókanna, Innanríkið, hafi orðið varð til fyrir mörgum árum. „Ég ætlaði mér að skrifa eins konar ritgerð um uppdiktað smásagnasafn og var kominn með svolítið af þeirri bók en svo einhvern veginn gekk það ekki upp. Svo þegar ég fór að hugsa um að skrifa einhverjar endurminningar, eða taka mig sjálfan fyrir, þó maður geri það náttúrulega yfirleitt í einhverjum prósentutölum í hverri bók, þá fannst mér þetta passa sem yfirskrift yfir þessar endurminningar sem eru náttúrulega missannar, en í grunninn sannar.“

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab