Kennarar slökktu eldinn áður en slökkviliðið kom

Innlent | mbl | 18.11.2026 | 20:59

Búið var að slökkva eldinn þegar slökkvilið kom á vettvang.

Kennarar slökktu eld í ruslatunnu við Sjálandsskóla í Garðaskóla í kvöld á meðan slökkviliðið bjó sig undir það að ganga til verka.

Þegar slökkviliðið mætti á staðinn við Löngulínu í Sjálandshverfinu um klukkan hálf sjö höfðu kennararnir slökkt eldinn með slökkvitækjum. 

Leiða má að því líkum að krakkar hafi kveikt eldinn. 

Slökkviliðið hefur ekki farið í fleiri útköll í kvöld. 

Sigurjón Hendriksson, varðstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu, greinir frá þessu í samtali við mbl.is.

mbl.is

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab