Stjarnan vann ÍBV eftir tvíframlengda spennu
Stjarnan tryggði sér sæti í átta liða úrslitum bikarkeppni kvenna í handbolta eftir 43:40-sigur á ÍBV í tvíframlengdum leik í Garðabæ í kvöld. Þetta var eina viðureign tveggja úrvalsdeildarliða í fyrstu umferð keppninnar.
Jafnt var í hálfleik, 13:13, og að loknum venjulegum leiktíma, 29:29. Enn var allt jafnt eftir fyrri framlenginguna, 32:32, en Stjarnan hafði að lokum betur eftir þá síðari.
Inga María Roysdóttir og Sara Rún Gísladóttir skoruðu ellefu mörk hvor fyrir Stjörnuna og Margrét Einarsdóttir varði fimmtán skot. Sandra Erlingsdóttir og Amelía Dís Einarsdóttir voru sömuleiðis með ellefu mörk hvor hjá ÍBV.
Öruggt hjá úrvalsdeildarliðunum
Úrvalsdeildarliðin Selfoss, KA/Þór og HK unnu öll örugga útisigra á liðum úr næstefstu deild og verða einnig í átta liða úrslitum.
Selfoss vann Víking, 43:25, eftir að hafa verið 21:10 yfir í hálfleik. Perla Ruth Albertsdóttir skoraði níu mörk fyrir Selfoss og Eva Lind Tyrfingsdóttir átta. Emilía Ína Burknadóttir var markahæst hjá Víkingi með sjö mörk og Guðrún Maryam Rayadh skoraði fimm.
KA/Þór hafði betur gegn Fjölni, 37:24, en staðan í hálfleik var 18:8. Sólveig Lára Kristjánsdóttir skoraði níu mörk fyrir gestina og Lydía Gunnþórsdóttir átta. Sara Kristín Pedersen var atkvæðamest hjá Fjölni með sjö mörk.
HK vann FH, 37:22, eftir að hafa leitt 18:11 í hálfleik. Inga Fanney Hauksdóttir, Jóhanna Lind Jónasdóttir og Tinna Ósk Gunnarsdóttir skoruðu fimm mörk hver fyrir HK. Eva Aðalsteinsdóttir gerði sex mörk fyrir FH og Sylvía Björt Blöndal fimm.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗