Pochettino mættur og vill sjá breytingar

Mauricio Pochettino er tekinn við United.

Mauricio Pochettino er tekinn við United. AFP/Jeff Dean

Mauricio Pochettino, nýr knattspyrnustjóri Manchester United, vill bæta hugarfar leikmanna, leggja áherslu á markvissari hlaup og gefa leikmönnum úr unglingastarfinu tækifæri nú þegar hann hefur störf hjá enska úrvalsdeildarfélaginu.

Argentínumaðurinn mætti á Carrington, æfingasvæði United, í dag. Samkvæmt The Telegraph töluðu hann og aðstoðarmaður hans, Jesús Pérez, 20 sinnum á dag í símann á meðan Pochettino lauk skyldum sínum hjá bandaríska landsliðinu.

„Maður þarf að hlaupa með markmið, maður þarf að hlaupa saman,“ sagði Pochettino á síðasta blaðamannafundi sínum eftir leik sem landsliðsþjálfari Bandaríkjanna, í kjölfar 2:0-sigurs á Haítí.

Leikmenn United hafa hlaupið næstminnst allra í ensku úrvalsdeildinni og þá er liðið í 19. sæti. Fyrsti leikur Pochettinos er á útivelli gegn Liverpool á sunnudag.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab