Ekki mikil launahækkun til flugvirkja

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands.

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands. mbl.is/Hulda Margrét/Eyþór

Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands, segir nýundirritaðan kjarasamning félagsins ekki fela í sér miklar launahækkanir til félagsmanna sinna. 

Kjarasamningurinn var undirritaður fyrr í dag og mun hann nú vera lagður fyrir félagsmenn Flugvirkjafélagsins í atkvæðagreiðslu. 

Icelandair á enn í kjaraviðræðum við Félag íslenskra atvinnuflugmanna og Flugfreyjufélag Íslands. 

Þráttað um vaktakerfið og skipulag

Er þetta samningur sem þú ert fyllilega sáttur við eða hefðir þú viljað hafa hann á annan hátt?

„Við allavega skrifuðum undir hann og ég hef ekki lagt það í vana minn fram að þessu að skrifa undir nema að ég sé þokkalega sáttur,“ segir Óskar í samtali við mbl.is. 

Spurður hvort samningurinn feli í sér miklar launahækkanir segir Óskar svo ekki vera.

„Við vorum að þrátta um ákveðið vaktakerfi og skipulag hér innanhúss. Það náðist sátt og við ákváðum að láta slag standa og setja þetta í kosningu.“

Fyrst og fremst hugsað um sjálfa sig

Kjaradeilurnar hafa verið harðar og voru yfirlýsingar sendar á víxl um helgina meðal annars en Icelandair sagði formenn þeirra félaga sem félagið á í kjaraviðræðum við draga upp villandi mynd af flugfélaginu. 

Óskar segir að þegar kjaradeilur dragist á langinn á þennan hátt hafi það víðtæk áhrif á vinnustaðamenningu. Því hafi verið ákveðið að láta á þetta reyna og leggja kjarasamninginn í dóm félagsmanna. 

Eruð þið með þessu að reyna að setja gott fordæmi fyrir hin félögin sem Icelandair á í viðræðum við?

„Þó að við styðjum hvort annað þá erum við fyrst og fremst að hugsa um sjálf okkur ef við erum að reyna að ná kjarasamning.“

Óskar hefur ekki heyrt hljóðið í sínum félagsmönnum varðandi samninginn enn sem komið er og getur hann því ekki sagt til um það hvort hann telji að samningurinn verði samþykktur í atkvæðagreiðslu félagsmanna. 

内容来自 Mbl.is - Helstu fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab