Gefa ekki upp þjóðerni hinna grunuðu

Lögregla vill ekki gefa upp þjóðernið.

Lögreglan hyggst ekki gefa upp þjóðerni þeirra sex erlendu ríkisborgara sem grunaðir eru um mansal í tengslum við komu 15 ára stelpu hingað til lands árið 2024 í fylgd með manni sem hún hafði verið gefin í hjónaband með. 

Þetta segir Alda Hrönn Jóhannsdóttir, aðalsaksóknari hjá lögreglunni á Suðurnesjum, í samtali við mbl.is. 

„Það eru bara persónugreinanlegar upplýsingar og margar forsendur fyrir því,“ svarar Alda Hrönn spurð hví þjóðernið megi ekki koma fram.

Einstaklingarnir sex eru allir frá sama landinu og þekkjast innbyrðis. Allir eru þeir grunaðir um mansal en karlmaður á þrítugsaldri sem konan var gefin í hjónaband með er einnig grunaður um kynferðisbrot.

内容来自 Mbl.is - Innlendar fréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab