Kim Jong Un reykti á meðan dóttirin renndi sér hjálmlaus
Kim Jong Un situr í hægindastól með sígarettu í hendi á skíðasvæðinu í Samjiyon. Eiginkona hans, Ri Sol Ju, stendur fyrir aftan hann. AFP/KCNA Via Kns
Kim Jong Un, leiðtogi Norður-Kóreu, brosti breitt þar sem hann sat í hægindastól með sólgleraugu á nefinu og sígarettu í hendi. Þannig birtist hann á einni af myndunum sem norðurkóreska ríkisfréttastofan KCNA birti í gær frá heimsókn fjölskyldunnar á skíðasvæðið í Samjiyon.
Á myndinni stendur eiginkona hans, Ri Sol Ju, aftan við stólinn. Á annarri mynd sést dóttir þeirra, Ju Ae, renna sér niður brekku á skíðum, hvítklædd og hjálmlaus.
Ju Ae, dóttir Kim Jong Un, rennir sér niður brekku í Samjiyon, hvítklædd og hjálmlaus. AFP/KCNA Via Kns
Fjölskyldan var á ferð um svæðið á sunnudag og mánudag í fylgd embættismanna Verkamannaflokksins. Kim skoðaði meðal annars hótel og aðstöðu fyrir skíðafólk. Að sögn KCNA var hann sérlega ánægður með hversu vel hefði verið vandað til verka við byggingarnar.
Fjallasýnin vakti líka hrifningu leiðtogans og því lengur sem hann horfði, þeim mun hrifnari varð hann, að því er fréttastofan greindi frá.
内容来自 Mbl.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


