Thelma lék allan tímann gegn City
Thelma Karen Pálmadóttir lék allan leikinn fyrir sænska meistaraliðið Häcken þegar það tapaði fyrir Manchester City, 2:0, á heimavelli í Meistaradeild kvenna í fótbolta í kvöld.
Markalaust var í hálfleik en Lauren Hemp kom enska liðinu yfir á 55. mínútu. Khadija Shaw bætti við öðru marki á þeirri 77. og tryggði gestunum sigurinn.
Häcken er með tvö stig eftir fimm leiki og situr í 15. sæti af átján liðum þegar öðrum leikjum kvöldsins er ólokið. Manchester City er komið með níu stig.
Tólf efstu liðin komast áfram úr deildarkeppninni. Einn leikur er eftir hjá Häcken í keppninni, gegn franska liðinu Lyon á útivelli 16. desember.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗