Elín Klara fór á kostum í toppslag

Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórleik.

Elín Klara Þorkelsdóttir átti stórleik. mbl.is/Anton Brink

Elín Klara Þorkelsdóttir var markahæst og gaf flestar stoðsendingar hjá Sävehof þegar liðið vann VästeråsIrsta, 36:27, á heimavelli í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Íslenska landsliðskonan skoraði átta mörk og gaf fimm stoðsendingar í leiknum, sem var toppslagur í deildinni.

Sävehof komst með sigrinum upp að hlið VästeråsIrsta á toppnum. Bæði lið eru með fjórtán stig eftir átta leiki en Sävehof er með betri markatölu. Þetta var fyrsta tap VästeråsIrsta í deildinni á tímabilinu.

内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab