Haukar fyrstir til að vinna í Mosfellsbæ
Afturelding tók á móti Haukum í 11. umferð úrvalsdeildar karla í handbolta í kvöld þar sem Hafnfirðingar héldu sigurgöngu sinni áfram með stórsigri á Mosfellingum 37:30.
Hafnfirðingar eru þar með fyrsta liðið til að vinna Aftureldingu í vetur á þeirra eigin heimavelli. Haukar eru með fullt hús stiga í deildinni eftir leikinn með 22 stig en Afturelding er áfram í 5. sæti deildarinnar með 13 stig.
Haukar settu tóninn strax í upphafi leiks og komust 3:0 yfir. Afturelding minnkaði muninn í eitt mark í stöðunni 5:4 fyrir Hauka en eftir það tóku Haukar öll völd á vellinum í fyrri hálfleik og byggðu upp gott forskot.
Freyr Aronsson, sem skoraði 13 mörk í viðureign liðanna þann 16. september, fór fyrir liði sínu aftur í kvöld og skoraði hann sjö mörk í fyrri hálfleik úr jafn mörgum skotum.
Haukar náðu átta marka forskoti í stöðunni 15:7 og héldu því forskoti út fyrri hálfleikinn. Staðan í hálfleik var 20:12 fyrir Hauka sem voru miklu betra liðið í hálfleiknum.
Árni Bragi Eyjólfsson og Kristján Ottó Hjálmsson skoruðu þrjú mörk hvor fyrir Aftureldingu í fyrri hálfleik og varði Sigurjón Bragi Atlason tvö skot.
Freyr Aronsson var sem fyrr segir með mörg mörk, þar af fjögur úr vítaskotum fyrir Hauka í fyrri hálfleik og varði Aron Rafn Eðvarðsson fjögur skot, þar af eitt vítaskot.
Haukar náðu 10 marka forskoti í byrjun seinni hálfleiks þegar staðan var 23:13. Í framhaldinu braut Daníel Bæring Grétarsson fólskulega á Frey Aronssyni og hlaut að launum beint rautt spjald sem var hárréttur dómur.
Mosfellingar náðu þó góðum spretti eftir þetta og minnkuðu muninn niður í sex mörk í stöðunni 28:22 fyrir Hauka.
Minnstur varð munurinn fimm mörk í stöðunni 29:24 fyrir Hauka en þá náðu Hafnfirðingar sjö marka forskoti í stöðunni 32:25.
Frábær fyrri hálfleikur og byrjun seinni hálfleiks dugði Haukum á endanum til að vinna Aftureldingu og vera fyrsta liðið til að vinna Mosfellinga á þeirra eigin heimavelli í vetur.
Oscar Lykke skoraði fjögur mörk fyrir Aftureldingu líkt og þeir Leó Halldórsson, Þorvaldur Tryggvason og Stefán Magni Hjartarson. Sigurjón Bragi Atlason varði 6 skot, þar af eitt vítaskot.
Freyr Aronsson skoraði 10 mörk fyrir Hauka og komu fjögur þeirra úr vítaskotum. Grétar Ari Guðjónsson varði 7 skot fyrir Hauka og Aron Rafn Eðvarðsson varði 5 skot og voru tvö þeirra vítaskot.
内容来自 mbl.is - Íþróttafréttir,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗


