Rétturinn sem skyggir á afmælisbarnið

Rjúkandi fajitas-panna vekur athygli, en stelur hún sviðsljósinu frá afmælisbarninu? Unsplash/Walter O

Er dónalegt að panta fajitas þegar maður er gestur í afmælisveislu á veitingastað?

Þessi spurning hefur reglulega skotið upp kollinum á TikTok undanfarin ár. Mexíkóska góðgætið er gjarnan borið fram á sjóðandi heitri pönnu sem vekur athygli þeirra sem sitja við borðið. Rétturinn er jafnvel sagður stela sviðsljósinu frá afmælisbarninu.

Umræðan blossaði upp á ný laugardaginn 7. nóvember þegar tekið var á málinu í Saturday Night Live. Þar lék gestastjórnandinn, samfélagsmiðlastjarnan Druski, afmælisstelpu sem kemst í uppnám þegar vinkona hennar pantar fajitas.

Ekki stela sviðsljósinu

Eftir þáttinn ákvað blaðamaður hjá People að leita álits hjá Elizabeth Anne Russell, sérfræðingi í mannasiðum og stofnanda siðaskólans Mannerly í Norður-Karólínu, og kanna hvort það þætti ókurteist að panta réttinn við þessar aðstæður.

„Rétt eins og þú myndir aldrei mæta í hvítum kjól í brúðkaup ættirðu aldrei að stela sviðsljósinu frá afmælisdrottningunni eða afmæliskónginum,“ segir Russell. „Þetta er þeirra dagur. Heiðraðu þau, sýndu þeim virðingu og fagnaðu þeim.“

Hún bendir á að það sé eðlilegt að taka tillit til annarra þegar pantað er á veitingastað. Ef skipta á reikningnum jafnt sé til dæmis kurteisi að velja ekki mun dýrari rétt en aðrir við borðið.

Spurð hvað sé til ráða ef gestur hefur þegar pantað fajitas og rjúkandi pannan dregur að sér alla athyglina svarar Russell:

„Bíddu þar til aðrir hafa fengið matinn áður en þú byrjar að borða eða stingdu kerti í hana fyrir afmælisdrottninguna. Smá húmor getur bjargað málunum,“ segir Russell.

Hún gerir þó greinarmun á pöntuninni sjálfri og því hvernig fólk hagar sér.

„Er pöntunin tæknilega séð brot á siðareglum ef verðið er nokkurn veginn í takt við það sem aðrir við borðið pöntuðu? Nei,“ segir hún við People. „Er ókurteist að stela sviðsljósinu frá afmælisbarninu? Eldheitt, já.“

内容来自 Mbl.is - Matur,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab