Mikill heiður fyrir Skagamanninn

Þórður Þorsteinn Þórðarson

Þórður Þorsteinn Þórðarson mbl.is/Anton Brink

Þórður Þorsteinsson Þórðarson verður FIFA-dómari eftir að stjórn KSÍ samþykkti tillögu dómaranefndar um nýjan alþjóðalista á fundi sínum í síðasta mánuði. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Þórður var valinn dómari ársins af leikmönnum á nýliðnu tímabili. Hann tekur sæti á listanum en Jóhann Ingi Jónsson hverfur af honum.

Vilhjálmur Alvar Þórarinsson, Ívar Orri Kristjánsson og Helgi Mikael Jónasson halda allir sæti sínu á FIFA-listanum. Bríet Bragadóttir er áfram alþjóðadómari í kvennaflokki.

Tijana Krstic bætist í hóp FIFA-aðstoðardómara. Þar eru einnig Gylfi Már Sigurðsson, Birkir Sigurðarson, Eysteinn Hrafnkelsson, Egill Guðvarður Guðlaugsson, Kristján Már Ólafs, Ragnar Þór Bender og Guðmundur Ingi Bjarnason.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab