Gagnrýndi undrabarnið harðlega

JJ Gabriel kvaddi Manchester United.

JJ Gabriel kvaddi Manchester United. Ljósmynd/Manchester United

Spænski fjölmiðlamaðurinn Juanma Castaño hefur gagnrýnt kveðjustund hins 16 ára gamla knattspyrnumanns JJ Gabriel hjá Manchester United, en hann er að ganga í raðir Real Madrid.

Gabriel tilkynnti brottför sína með yfirlýsingu og myndbandi þar sem hann þakkaði enska félaginu, þar sem hann hafði spilað frá því að hann gekk til liðs við unglingaakademíu þess þegar hann var tíu ára gamall.

„Þessi strákur hefur ekki spilað eina einustu mínútu fyrir Manchester United. Samt kveður hann eins og hann væri goðsögn hjá United,“ sagði Castaño í El Partidazo de COPE.

Kollegi hans, fjölmiðlamaðurinn Manolo Lama, kom Gabriel til varnar og hélt því fram að fjölmiðlar ættu sinn þátt í að skapa óraunhæfar væntingar með því að lýsa ungum akademíuleikmönnum ítrekað sem framtíðarstjörnum.

内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab