Hrannar Björn var næstum því búinn að missa frá sér soninn og eiginkonuna áður en hann uppgötvaði þetta: „Þetta skapaði þvílíka spennu í okkar fjölskyldulífi“

Hrannar Björn Arnarsson formaður ADHD-samtakanna segir að hann hafi næstum því verið búinn að missa frá sér son sinn og eiginkonu sína þegar það rann upp fyrir honum að hann var að nálgast son sinn á allt annan hátt en eiginkona hans. 

„Það var svona algjört peruljós hjá mér. Þegar ég var byrjaður að vinna hjá ADHD-samtökunum þá sat ég námskeið fyrir foreldra barna. Konan mín hafði farið á svona námskeið tíu árum fyrr út af stráknum okkar, sem var nýbúinn að greinast með ADHD, ég nennti ekki með á námskeiðið. Það gerði það að verkum að við vorum að nálgast hann og hans hegðun með sitthvorum hætti. Ég var að reyna að kenna honum eins og mínum börnum áður en hún tók tillit til þess sem hann var að glíma við og mætti honum með þeim hætti. Þetta skapaði þvílíka spennu í okkar fjölskyldulífi. Ég nánast missti hann og nánast missti hana. Það var ekki fyrr en ég í raun fattaði sjálfur og hugsaði að ef ég hefði farið með henni á námskeiðið þá hefðum við öll verið á sömu blaðsíðunni,“ segir Hrannar Björn í einlægu viðtali við Ásdísi Olsen á Samstöðinni. 

„Ég skammaðist mín niður í tær. Þetta hefði verið besta fjárfesting lífs míns að fara á þetta námskeið. Ég segi nú við alla sem fara á þetta námskeið að taka makann með.“

Hrannar hafði alltaf verið að reyna að setja son sinn í einhvern kassa sem hann passaði ekki í. „Hann mátti ekki skilja skóna eftir hér og svona. Ég þurfti að færa væntingarnar á þann stað sem pössuðu honum og horfa á kostina sem komu út úr þessu. Hann var félagslega sterkur og öflugur í mörgum hlutum en vegna þess að ég var ekki sáttur við hvar hann setti skóna þá var það vandamálið. Maður fer að fókusa á gallana og þá fer maður að brjóta barnið niður í stað þess að byggja það upp, ýta því út í horn. Það var nánast allt í okkar samskiptum. Ástæðan var ekki ADHD-ið, ástæðan var ég, af því að ég tók ekki tillit til þess. Eiginleikinn sem slíkur er ekkert vandamál, það er meira samfélagið og hvernig við erum alltaf að reyna að ýta fólki inn í sama boxið sem er orðið vandamál í nútímasamfélagi.“ Á það við um skólakerfið og atvinnulífið. Þeir sem stjórna sér sjálfir, eins og mannfólk þegar það bjó á gresjunni, á ekki í neinum vandamálum. Því sé það ekki tilviljun að margir sem starfa í listum eða lausamennsku séu með ADHD. 

Getur valdið svefnleysi og vefjagigt

Hrannar segir að ADHD hafi alltaf fylgt mannkyninu, nú séu greiningartækin og viðurkenning samfélagsins komin á það stig að hægt sé að skoða þetta af einhverri alvöru. 

„Það eru alltaf fleiri og fleiri rannsóknir sem sýna fram á að mun stærri hluti mannkynsins er með ADHD. Við erum alveg að nálgast meira en 10 prósent í algengni, allavega hér á Íslandi, ég held að við séum bara á undan í því og þetta verði normið þegar fram líða stundir.“

Nú er að koma inn holskefla af konum sem eru að greinast með ADHD. „Sérstaklega konur á miðjum aldri því þær fara að missa boltana þegar þær fara í framhaldsnám, eiga börn, þá eru kerfin sem þær eru búnar að búa sér til, til að halda utan um þetta. Svo þegar álagið verður of mikið, fjölskyldan, námið og allt þetta, þá brenna þær út og þá eru oft einkennin þreyta, vefjagigt, svefnleysi, kemur út með alls konar hætti. Svo þegar farið er að leita skýringa þá kemur í ljós að skýringin er ADHD og fólk hefur bara verið á yfirsnúningi að brjóta sig niður allan þennan tíma,“ segir hann.

„Það er engin tilviljun að það séu miklu fleiri konur að glíma við burnout á Íslandi en karlar.“

Jákvæð þjóðareinkenni Íslendinga lýsing á ADHD

Það fólk sem glímir við ADHD er gjarnan hvatvíst og geta þeir einstaklingar haft mikla sköpunargáfu.

„Við erum mjög feimin við að tala um að þetta sé með einhverja kosti því mjög margir sem eru að glíma við þetta eru í mjög miklum vandræðum. En ég segi það fullum fetum að heimurinn væri ekki á þeim stað sem hann er í dag, með jákvæðum hætti, ef við hefðum ekki haft þennan eiginleika með okkur frá örófi alda,“ segir Hrannar Björn. 

Íslandssagan er það ekki undanskilin. „Ef þú skoðar þjóðareinkennin sem við erum alltaf svo stolt af; þetta brjálæði að gera bara hlutina og þora öllu. Allt sem við lítum á sem jákvæð þjóðareinkenni er bara lýsing á ADHD.“

Hér má horfa á viðtalið í heild:

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab