Fær nákvæmlega sömu laun og vinur sinn - Verða launahæstu menn Arsenal

Declan Rice, miðjumaður Arsenal, hefur náð samkomulagi við félagið um nýjan fimm ára samning sem gildir til sumarsins 2031.

Samkvæmt Daily Mail er búist við að Rice skrifi undir á næstu dögum og verði í kjölfarið einn launahæsti leikmaður félagsins ásamt Bukayo Saka, sem þénar yfir 350 þúsund pund á viku.

Rice, sem er 27 ára, gekk til liðs við Arsenal frá West Ham sumarið 2023 fyrir 105 milljónir punda og hefur síðan fest sig í sessi sem einn mikilvægasti leikmaður liðsins.

Hann átti stóran þátt í því að Arsenal varð Englandsmeistari á síðasta tímabili og komst í úrslit Meistaradeildarinnar.

Þá er spænski markvörðurinn David Raya einnig sagður hafa náð samkomulagi í grundvallaratriðum um framlengingu á sínum samningi.

Núverandi samningar beggja leikmanna renna út árið 2028 en Arsenal vill tryggja sér þjónustu þeirra til lengri tíma.

内容来自 DV.is,版权归原作者所有。

阅读原文 ↗

用 HomepageTab 新标签页关注 RSS,打开浏览器就能看到更新。

安装 HomepageTab