Meirihluti Bandaríkjamanna sammála um besta og versta forseta 21. aldarinnar
Meirihluti Bandaríkjamanna telja Barack Obama vera besta forseta þessarar aldar. Donald Trump er einnig langóvinsælasti forsetinn samkvæmt nýrri könnun.
Í nýrri könnun Politico var kannaður hugur fólks til allra forseta Bandaríkjanna á þessari öld og þeir beðnir um að raða þeim röð frá þeim besta til hins versta.
Málið er ekki flókið þar sem forsetarnir eru aðeins fjórir. Annars vegar Demókratarnir Barack Obama og Joe Biden og hins vegar Repúblikanarnir Donald Trump og George W. Bush. Allir voru þeir tvíkjörnir nema Biden, sem bauð sig aðeins einu sinni fram vegna aldurs.
Niðurstöðurnar eru nokkuð afgerandi og svarendur flestir á einu máli um að Barack Obama hafi verið besti forseti Bandaríkjanna á þessari öld. Meirihluti, 51 prósent, fólks setti hann í fyrsta sæti, 18 prósent í annað og 24 prósent í þriðja. Aðeins 8 prósent settu Obama í síðasta sætið.
Meirihluti Bandaríkjamanna telja einnig að Donald Trump, núverandi forseti, sé sá versti á öldinni. Það er 52 prósent. Trump á sér þó aðdáendahóp því að 28 prósent telja hann vera þann besta, 11 prósent næst besta og 9 prósent settu hann í þriðja sætið.
16 prósent telja Bush þann besta og 5 prósent Joe Biden. Biden er næstóvinsælastur því 34 prósent telja hann þann versta.
内容来自 DV.is,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗