Karólína sá rautt gegn Real
Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, landsliðskona í fótbolta, var rekin af velli á 42. mínútu í leik Inter gegn Real Madrid í Meistaradeild Evrópu í kvöld.
Karólína fór hátt með sólann í Ariönnu Caruso, miðjumann Madrid. Dómarinn sýndi henni fyrst gula spjaldið en breytti því í rautt eftir að hafa skoðað atvikið í VAR-skjánum.
Þrátt fyrir liðsmuninn náði Inter að jafna fyrir leikhlé og var staðan 1:1 þegar liðin gengu til búningsherbergja.
Cecilía Rán Rúnarsdóttir hefur átt góðan leik í marki Inter og varið ítrekað frá leikmönnum spænska liðsins. Síðari hálfleikur er hafinn þegar þetta er skrifað.
内容来自 Mbl.is - Íþróttir - Fótbolti,版权归原作者所有。
阅读原文 ↗/frimg/1/69/32/1693266.jpg)